Afurðasjóður Grindavíkurbæjar.
Virðulegi forseti. Það er mikill kjarnapunktur þegar hv. þingmaður talar um að það sé metnaður innan nefndarinnar fyrir því að gera vel. En nefndin er sett í algjörlega vonlausa stöðu þegar frumvarp kemur inn til þings sem hefur ekki farið í eðlilegt samráð. Hagsmunaaðilar, sem eiga allt undir því að hér takist vel til, fá þetta mál sent í kvöld eða á morgun og hafa einn eða tvo sólarhringa til að bregðast við og koma og eiga samtal við nefndina.
Ég ætla að leyfa mér að nefna hver ástæðan er í þetta sinn. Það er þetta svikalogn sem var í stjórnarsamstarfinu í aðdraganda forsetakosninga þegar þurfti að hafa taktinn hægan í þinginu til að rugga ekki bátnum í forsetakjöri, og þegar dagskrá þingsins var stillt upp þannig að það hentaði forsetakjörinu. Þá á ég ekki bara við þessa síðustu viku heldur það hvernig ákveðin mál sem voru erfið, t.d. lagareldi sem hv. þingmaður nefnir, voru kæld meðan á baráttunni stóð. Þingið er síðan sett í þá stöðu að eiga að vinna upp einhvern kúf. Þetta eru óþolandi vinnubrögð. Það er óþolandi að sjá að svona hagi menn málum, meira að segja þar sem grundvallarhagsmunir í lífi og velferð fólks eru undir eins og í þessu máli. Ég gat ekki stillt mig um að nefna þetta.
Síðan sér maður hvernig dagskráin lítur út hér í kvöld. Það er fyrirhuguð umræða um sölu Íslandsbanka. Það er ÍL-sjóður þar sem við höfum lögfræðiálit um það að ríkisstjórnin sé komin í stríð við eignarréttarákvæði stjórnarskrárinnar. Allt eru þetta grundvallarmál sem hefðu átt að fá eðlilegan og heilbrigðan meðgöngutíma til að samtalið í þessum sal næði út í samfélagið og við næðum einhverjum þroska. Það þyrmir yfir mann að sjá hvernig vinnubrögðin eru stundum hjá stjórnarmeirihlutanum.