Afurðasjóður Grindavíkurbæjar.
Virðulegi forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir ræðu sína sem var um margt ágæt og hann fór vel yfir þetta að mörgu leyti. Hér er um mjög áhugavert frumvarp að ræða sem er frumvarp til laga um Afurðasjóð Grindavíkurbæjar. Það sem mér finnst áhugavert í þessu er að skoða t.d. gildissvið laganna, 1. gr. Þar segir, með leyfi forseta:
„Lög þessi gilda um einstaklinga og lögaðila sem stunda tekjuskattsskyldan atvinnurekstur eða sjálfstæða starfsemi og verða fyrir tjóni skv. 6. gr. á tímabilinu frá og með gildistöku laga þessara til og með 31. desember 2024.“
Við erum núna komin fram í júní og það verður ekki annað séð en að þessi lög eigi eingöngu að gilda um einstaklinga sem verða fyrir tjóni frá gildistöku laganna, sem verður væntanlega, segjum bara 15. júní, um miðjan júní, og til áramóta. Þetta eru rétt rúmlega sex mánuðir. Ég sá í fréttum nýlega að helstu jarðfræðingar landsins teldu jafnvel að það væri möguleiki á að jarðhræringarnar á Reykjanesi myndu einfaldlega hætta í sumar þannig að ég get ekki séð annað en að tjónið sem á að fara að bæta hafi þegar orðið, tjónið sem Grindavík hefur orðið fyrir. Atvinnustarfsemin í Grindavík hefur nánast þegar orðið fyrir því tjóni sem getur orðið og ég held að það sé ekki mikið tjón sem eigi eftir að verða. En lögin eiga að ná til þess en ekki þess tjóns sem hefur orðið. Það væri gaman að heyra álit hv. þingmanns á þessu.
Einnig vil ég benda á að hugtakanotkun er mjög furðuleg. Það er talað um fjárhagsaðstoð í einu ákvæðinu, í 2. gr. um markmiðið, en svo er talað um styrkveitingar og styrki og umsóknir. (Forseti hringir.) Ég get ekki annað séð en að hér sé bara um bætur að ræða og væri gott að heyra (Forseti hringir.) hversu takmarkað gildissvið laganna er raunverulega.
(Forseti (ÁsF): Ég minni þingmenn á ræðutíma sem er tvær mínútur í fyrri umferð.)