Afurðasjóður Grindavíkurbæjar.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir svarið. Það sem mér finnst líka mjög áhugavert í því er að þetta nær eingöngu til tjóns sem verður frá og með gildistöku laganna og til og með 31. desember. Annað sem virðist líka takmarka mjög gildissvið laganna, sem kemur fram í markmiðinu, er að það eigi að gefa rekstraraðilum kost á að sækja um fjárhagsaðstoð, ekki styrki heldur fjárhagsaðstoð, til að bæta meiri háttar óbeint tjón á matvælum og fóðri af völdum hamfara, þ.m.t. vegna rýmingaraðgerða stjórnvalda tengdum þeim. Ég veit ekki til þess að það eigi að fara að rýma Grindavík á næstu mánuðum. Ég hélt að það væri búið að rýma Grindavík þannig að ég get ekki séð neitt tjón verða vegna þess.
Annað varðandi sjávarútveginn — það er talað um fóður og það er skilgreint og svo líka vegna matvæla. Það má lesa á milli lína að þetta virðist fyrst og fremst eiga að vera fyrir sjávarútvegsfyrirtæki, fyrst og fremst alla vega. En það eru kindur þarna sem þarf að fóðra. (Forseti hringir.) Það sem mér finnst liggja undir er að það virðist ekki liggja fyrir nákvæmlega hvað það er (Forseti hringir.) sem á að styrkja og hvað það er sem á að gerast í framtíðinni; hvar er hættan, hvað gæti mögulega gerst, (Forseti hringir.) hvar er tjónið sem gæti mögulega orðið í framtíðinni? Er tjónið orðið? (Forseti hringir.) Ég get ekki séð það í þessu. (Forseti hringir.)
(Forseti (ÁsF): Ég minni ræðumann á tímann, þú fórst langt fram yfir hann.)(EÁ: Já, fyrirgefðu.)