154. löggjafarþing — 116. fundur,  4. júní 2024.

Afurðasjóður Grindavíkurbæjar.

1131. mál
[20:03]
Horfa

Inga Sæland (Flf) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir sína ágætu ræðu. Það vöknuðu með mér ákveðnar spurningar. Til hvers kemur þetta frumvarp fram um þennan Afurðasjóð? Mér þykir það seint fram komið. Ýmislegt sem við sjáum hér bendir til þess að hér var engin fyrirhyggja og engar sviðsmyndir þó að við sæjum strax í fyrra hvert stefndi, löngu áður en 10. nóvember kom og rýma þurfti bæinn. Ég hélt að þessi Afurðasjóður væri frekar jákvæður að því leyti að tryggingafélög harðneita að tryggja afurðir Grindvíkinga. Mér skilst að ríkið ætli að taka á sig a.m.k. eitthvað af því. En þarna detta alltaf einhverjir milli skips og bryggju, því miður, eins og hv. þingmaður bendir réttilega á.

Ég nefndi fyrr í dag eitt sem ég átta mig ekki alveg á. Þegar við fengum fulltrúa matvælaráðuneytis fyrir atvinnuveganefnd 4. júní fengu þeir þá spurningu hvort vitað væri um eitthvert tjón sem þegar hefði orðið, og um umfang þess, sem félli undir gildissvið þessara laga. Nei, við fengum svar í dag frá matvælaráðuneyti. Þau höfðu leitað hófanna hjá starfshópi sem hafði verið skipaður á vegum forsætisráðuneytis um nákvæmlega þetta, umfang tjóns sem þegar væri orðið. Þau vissu ekki neitt. Svarið var fullt af engu. Við sitjum enn og aftur uppi með þessi óvönduðu vinnubrögð. Það er verið að skipa hópa. Ég velti fyrir mér hvort við hv. þingmaður séum ekki sammála um að það sé betra að við vinnum með þennan Afurðasjóð með tilliti til þess að vonandi nái hann utan um helst alla. Auðvitað viljum við það. (Forseti hringir.) Ég velti fyrir mér hvort hv. þingmaður sé ekki líka sammála því að hér hafi verið fullseint í rassinn gripið með tilliti til þeirrar vitneskju sem við höfðum um yfirvofandi hamfarir.