frjálst flæði ópersónugreinanlegra gagna.
Frú forseti. Ég ákvað í gær í atkvæðagreiðslu um þetta mál að koma upp og reyna að skýra á einni mínútu út á hvað þetta frumvarp gekk. Eftir atkvæðagreiðsluna komu til mín margir hv. þingmenn og þökkuðu mér fyrir að skýra út hvað væri raunverulega verið að greiða atkvæði um. Það sýnir sig líka að þetta mál hefur held ég ekki fengið eina einustu umsögn sem sýnir kannski að þetta var dálítið flókið mál fyrir fólk að skilja enda mjög tæknilegt.
Ég ætla að reyna að nota þennan tíma í 3. umræðu, áður en við afgreiðum þetta sem lög, til að gefa fólki aðeins dýpri innsýn í það af hverju þetta skiptir máli og hvað er raunverulega verið að fjalla um. Það er von mín að þeir þingmenn sem eru ekki hér inni hlusti á þetta fyrir morgundaginn, svona rétt á meðan þeir eru að lesa líka umsagnirnar fyrir nefndarfundinn. Þá geta þeir tekið það yfir kaffibollanum að hlusta á þetta.
Þetta er frekar tæknilegt frumvarp að því leyti að hér er verið að horfa á hvar gögn eru. Þegar tölvubyltingin hófst og næstum því alveg fram undir aldamótin voru öll gögn geymd á tölvunni þinni. Ef þú varst að skrifa eitthvert skjal, t.d. hugmynd að frumvarpi, þá var það bara á tölvunni þinni og ef einhver vildi komast í þetta skjal, t.d. yfirvöld eins og lögreglan, þá varð að fá heimild dómara til að leita hjá þér og leita í tölvunni og þá fundust gögnin þar. Síðan þróaðist tæknin í það sem við á íslensku höfum kallað skýjatækni sem er í rauninni fólgin í stórum gagnaverum úti um allan heim þar sem við geymum gögnin okkar. Það geta verið gögn eins og tölvupóstur, það geta verið gögn eins og svona skjöl sem við erum að búa til. Allar stafrænu myndirnar okkar eru alltaf geymdar einhvers staðar í gagnaverum. Samnefnarinn yfir öll gagnaverin sem geyma svona gögn er skýið.
Það sem menn uppgötvuðu um leið og menn fóru að geta geymt gögnin hvar sem er í heiminum var að það gat haft áhrif á tvö mikilvæg atriði sem hafa verið mikið til umræðu á undanförnum árum. Annars vegar er það persónuvernd. Hvar eru gögnin mín? Ef þau eru einhvers staðar þar sem er auðvelt fyrir fólk að komast í þau, getur það þá t.d. fengið allar launaupplýsingar mínar? Þær eru reyndar allar inn á althingi.is. En sjúkrasöguna mína? Og t.d. Heilsuvera, þar eru persónugreinanleg gögn. En öll ópersónugreinanlegu gögnin, eins og t.d. þetta skjal, þetta frumvarp, nú eða t.d. stafræna myndin sem hv. þm. Guðbrandur Einarsson sendi mér áðan af því hvað væri í kvöldmatinn hérna á Alþingi, þau enda einhvers staðar í skýinu.
Í flestum tilfellum er mér nokkurn veginn sama hvar þau lenda en það eru ákveðin tilvik þar sem það skiptir máli hvar þau lenda og það eru þau tilvik þegar t.d. lögregla vill komast í viðkomandi gögn til að rannsaka mál. Þá skiptir máli hvar gögnin liggja. Ef lögreglan kemur og bankar upp á heima hjá mér þá eru gögnin ekkert endilega á tölvunni minni lengur heldur eru þau í einhverju gagnaveri einhvers staðar úti í heimi. Þá kemur spurningin: Hvernig eigum við þá að fá aðgang að gögnunum? Og jú, þá er búið að gera það þannig innan Evrópska efnahagssvæðisins að lögreglan á Íslandi getur haft samband t.d. við gagnaver sem er á Írlandi og sagt: Við erum hér með dómsheimild fyrir því að fá aðgang að þessum gögnum. Látið okkur fá gögnin. Þá á þessi þjónustuaðili að afhenda gögnin ef þau eru þar og uppfylla þær kröfur sem m.a. er fjallað um í 5. gr. þessa frumvarps.
Það er líka sagt í þessu góða frumvarpi hvað eigi að gera ef gögn eru t.d. hýst hér á landi og erlendir aðilar biðja um aðgang að þeim. Þar sem er verið að tala um frjálst flæði er verið að tryggja að ég geti geymt þetta skjal í gagnaveri á Íslandi, Írlandi, í Lúxemborg eða í einhverju af EES-löndunum, það á ekki að skipta máli hvar það er, en það sé ákveðið ferli þar sem löggæsluaðilar eða yfirvöld — lögbært yfirvald eins og það er kallað í þessu frumvarpi, við skulum hafa það á hreinu — geta óskað eftir aðgangi.
Í 6. gr. er ef ég man rétt tilgreint að ef t.d. íslenskt fyrirtæki svarar ekki lögbundnum yfirvöldum annars EES-ríkis um aðgang að gögnunum þá er ráðherrann, sem ég held að sé — það er góð spurning hvaða ráðherra það er. Þetta er jú frumvarpið á eftir. Það getur kannski einhver flett því upp hvaða ráðherra það er. Ráðherra gegnir hlutverki tengiliðar, þannig að það er vitað við hvern þú átt að hafa samband ef þú vilt fá aðgang að gögnunum. Þarna er hreinlega verið að tryggja að tæknifyrirtækin geti unnið þvert á EES, nákvæmlega eins og öll önnur þjónustufyrirtæki. Þess vegna er þetta frjálst flæði gagna, rétt eins og við höfum talað um frjálst flæði fjármagns, frjálst flæði vinnuafls o.s.frv.
Þetta kemur í rauninni sem reglugerð frá Evrópusambandinu eins og mjög margt af því sem við fáum hingað inn. Ég hafði gaman af því þegar þetta kom upphaflega inn sem reglugerð, af því að við byrjum á því að taka við EES-reglugerðunum og svo förum við í að búa til lögin um þær og allt þetta. Það var alveg greinilegt að það voru heldur ekkert allir með það á hreinu hvað væri að koma hingað inn í þingið.
Það er líka þannig að við þurfum að passa okkur, segir ákveðinn stjórnmálaflokkur hér í þinginu, að það sé nú engin gullhúðun á þessum málum. Það er nú bara hreinlega þannig að þetta er beint af kúnni eins og það heitir á góðri íslensku, þ.e. þetta er bara beint upp úr reglugerðinni, enda vísað í hana í næstum því hverri einustu setningu. Næstum því hver einasta málsgrein er með tilvísun í reglugerðina. Það hljómar eins og þetta sé frekar einhver pappír úr akademíunni heldur en frumvarp en þannig er það þegar við erum að vísa í reglugerðirnar. Það skiptir máli að það sé vel skilgreint.
Það er mikilvægt að taka það fram að í 4. gr. frumvarpsins er sérstaklega tekið fram að þegar kemur að þessum gögnum er hægt að undanþiggja gögn sem varða almannaöryggi. Við getum tekið dæmi um það að nú sit ég sem áheyrnarfulltrúi í utanríkismálanefnd og við fáum mikið af trúnaðargögnum send, sérstaklega sem tengjast varnarmálum og öðru. Við myndum jú ekki vilja að hver sem er gæti krafist þess að fá aðgang að þeim. Þess vegna má setja skilyrði um að ákveðin gögn, eins og þau sem varða almannaöryggi, séu ekki hýst einhvers staðar annars staðar. Þetta er t.d. ástæðan fyrir því að við ættum ekki að hýsa tölvupóst Alþingis í skýinu einhvers staðar í einhverju landi, vegna þess að þá væri mögulega hægt fyrir lögbundin yfirvöld í þeim löndum að krefjast aðgangs að tölvupóstinum okkar sem gæti innihaldið gögn sem t.d. við í utanríkismálanefnd megum ekki framsenda eða prenta eða sýna neinum því að þau falla undir trúnað og ekki bara einhvern trúnað heldur landráðstrúnað. Ef við brjótum þann trúnað er hægt að kæra okkur fyrir landráð og það er 16 ára fangelsi. Það er eins gott að þetta með almannaöryggi sé hér inni.
Ég er viss um að það hafa örugglega komið upp einhverjar spurningar frá einhverjum um þetta. Þó að ég hafi reynt að skýra þetta út þá er þetta frekar tæknilegt frumvarp, næstum því jafn tæknilegt og næsta frumvarp sem við förum að tala um sem við munum fara mjög djúpt í gegnum enda mjög athyglisvert og skemmtilegt frumvarp.
Það er líka mikilvægt að við áttum okkur á því að það er ákveðinn halli í því að taka upp svona reglugerðir. Þetta er upphaflega frá 2018. Með öðrum orðum erum við að innleiða eitthvað sex árum eftir að Evrópusambandið gerði þetta sem þýðir að á þessum sex árum þá eru jafnvel atriði eins og það að íslensk yfirvöld gætu hafa viljað óska eftir einhverjum gögnum sem eru í skýinu, t.d. fyrir rannsókn á einhverju máli, sem viðkomandi þjónustuaðilar í því landi þurftu ekki að uppfylla vegna þess að við uppfylltum ekki lögin. Sama gildir að sjálfsögðu öfugt. Ef einhver kom og vildi fá aðgang að þessum gögnum erlendis frá þá uppfylltum við ekki þær kröfur. Þetta er eitthvað sem við þurfum að hafa í huga. Það getur haft slæmar afleiðingar fyrir rannsókn á alvarlegum málum og öðru ef við tökum þessar reglur ekki nógu hratt og vel upp og inn í okkar lög. Maður hefði vonað að það væri hægt að gera það nokkuð hratt vegna þess að þetta er nú nokkurn veginn bara beint upp úr reglugerðinni. Það er lítið annað t.d. í þessu en að þýða það og staðfæra.
Það er von mín að við vinnum hraðar með önnur slík lög, sérstaklega lög sem tengjast tækninni. Þegar við erum að taka eitthvað upp sex árum eftir á þá getur það bara haft miklar afleiðingar. Tökum bara sem dæmi að verið var að samþykkja núna á dögunum gervigreindarreglugerð á vegum Evrópusambandsins sem t.d. bannar að nota gervigreind í tengslum við það að fylgjast með ferðum þínum í gegnum eftirlitsmyndavélar. Ef það líða sex ár þar til við tökum það upp hér þá gæti verið búið að gera fullt af hlutum sem ganga gegn þeirri reglugerð á þeim tíma og það gætu verið hlutir sem brjóta á okkar borgaralegu réttindum. Það mun líka gera það að verkum að fyrirtæki á Íslandi munu ekki geta endilega þróað lausnir á þessu sviði sem uppfylla kröfur Evrópusambandsins af því að við erum ekki búin að taka upp reglurnar.