154. löggjafarþing — 116. fundur,  4. júní 2024.

frjálst flæði ópersónugreinanlegra gagna.

912. mál
[20:28]
Horfa

Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir (V) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni kærlega fyrir greinargóða yfirferð yfir þetta mál. Ég ætla að taka undir það að þetta er mál sem lætur ekki mikið yfir sér og virðist vera berstrípað innleiðingarmál frá hæstv. háskóla- og nýsköpunarráðherra. En þegar ég hlýddi á hv. þingmann og umfjöllun hans kíkti ég á 5. gr. sem varðar aðgang yfirvalda að gögnum.

Þegar maður lítur á málið sjálft eru hér ekki umsagnir. Hér eru miklir hagsmunir fyrir íslensk yfirvöld. Ein hlið á þessu máli, eða kjarni þessa máls, er að auðvelda viðskipti þannig að gögn geti flætt með jöfnum hætti, óháð því hvar þau eru staðsett. Síðan kemur hérna fram að lög þessi hafi ekki áhrif á heimildir íslenskra yfirvalda til að óska eftir eða að fá aðgang að gögnum um framkvæmd opinberra skyldustarfa sinna. Það er mjög jákvætt því að öll þekkjum við umræðu lögreglunnar, sem hv. þingmaður nefndi, sem hefur talað opinskátt um það, og ákæruvaldið sömuleiðis, að þau séu ekki jafnsett systurembættum sínum á Norðurlöndum hvað varðar heimildir í störfum sínum. Mér fannst jákvætt að heyra þetta.

En það stakk mig að sjá það, í ljósi mikilvægis 5. gr., að óskað hefur verið eftir umsögnum en engar borist. Mig langaði að spyrja hv. þingmann hvort hann hefði einhverja innsýn í umræðu um málið á fyrri stigum því að ég játa að þetta mál fór fram hjá mér.