154. löggjafarþing — 116. fundur,  4. júní 2024.

frjálst flæði ópersónugreinanlegra gagna.

912. mál
[20:30]
Horfa

Gísli Rafn Ólafsson (P) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir spurninguna. Því miður kom ég aðeins að málinu þegar EES-innleiðingin eða EES-ferlið kom upprunalega í þingsal. Eftir það hefur það ekki komið á borð nefndar sem ég sit í.

Það er sorglegt að ekki hafi komið neinar athugasemdir. Spurningin er hvort málið hafi verið sent til allra aðila sem hefðu átt að fá aðgang að þessu, t.d. til lögreglu og saksóknara, eins og nefnt var, en líka til þjónustuaðila hér á landi. Við höfum gagnaver hér á landi sem þetta skiptir máli fyrir. Þetta kemur frá Evrópusambandinu og kannski halda allir að allt hljóti að vera fínt og gott frá þeim.

Við þurfum samt að passa okkur á því að það hafa verið hlutir í tæknitilskipunum frá þeim sem hafa verið valkvæð atriði sem Ísland ætlaði að taka upp sem skilyrt ákvæði. Sem betur fer náðum við að stoppa það hér í þinginu. Það hefði gefið möguleika á því að fylgjast mætti með öllum skilaboðum sem þú sendir í gegnum síma eða tölvuþjónustu. Ég vona að allir séu sammála um það að við viljum ekki að þau skilaboð lendi á glámbekk. Því miður er ekki mikil tækniþekking fyrir hendi. Það hefur kannski stoppað það að þetta fari út á rétta staði.