154. löggjafarþing — 116. fundur,  4. júní 2024.

frjálst flæði ópersónugreinanlegra gagna.

912. mál
[20:32]
Horfa

Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir (V) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir svarið. Ég held að hér sé komin birtingarmynd þess þegar ríkisstjórnarflokkarnir þrír fóru að róta í Stjórnarráðinu í síðustu samningalotu sinni þegar þau endurnýjuðu heitin — að fjarskipti tilheyri háskólaráðuneyti. Þetta höfum við séð í umhverfis- og samgöngunefnd. Þetta hefur líka haft áhrif á starf allsherjar- og menntamálanefndar vegna þess að fjarskiptamál tengjast mörgum málaflokkum. Ég set stórt spurningarmerki við það að þau séu staðsett í réttu ráðuneyti.

Við sjáum að Neytendastofu, Persónuvernd, ríkislögreglustjóra, samtökum gagnaversfyrirtækja, Samtökum iðnaðarins og Skattinum hafa verið sendar umsagnarbeiðnir. Við vitum að það er allur gangur á þessu. Ríkisstofnanir og litlir aðilar fá alls konar beiðnir og hafa ekki alltaf burði til að fylgjast með því þegar þær eru í tugum taldar. Þá er það nefndanna, og meiri hlutans ekki síst, að fylgja því eftir að gögnin berist til þingsins.

Þetta slær mann sem berstrípað innleiðingarmál. Markmiðið er auðvitað mjög af hinu góða í sjálfu sér. Það er jafnan þannig með þessi mál sem þaðan koma að vinnulag og verklag er annað en hér á Alþingi. Í því samhengi er kannski ástæða til að treysta verklaginu. Ég staldra við þetta af því að þetta lýtur að flæði gagna milli landa og við höfum ekki umsagnir frá þeim opinberu aðilum sem málið varðar. Við höfum ekki neitt frá Persónuvernd. Við höfum heldur ekki neitt frá gagnaversfyrirtækjum. Mér finnst sérstakt af hálfu meiri hlutans, sem ætlar sér að afgreiða þetta mál, að hann hafi ekki sótt fastar að fá fram athugasemdir.