frjálst flæði ópersónugreinanlegra gagna.
Frú forseti. Ég er hjartanlega sammála hv. þingmanni. Þetta er frumvarp sem virðist hafa átt að flæða gegnum þingið. Það er aldrei gott. Við eigum að passa upp á það ef mál fær ekki eina einustu umsögn að þrýsta á um það. Í versta falli kemur ein góð umsögn þar sem segir: Þetta er frábært.
Ég held að það sé nokkuð til í því sem hv. þingmaður benti á. Það er verið að flytja hluti milli ráðuneyta og þetta skarast orðið. Af hverju eru fjarskipti í þessu ráðuneyti en ekki einhverju öðru? Það er góð spurning. Af hverju eru fjarskipti ekki hluti af innviðum? Það má spyrja sig: Eitthvað sem er hægt að segja að sé tækni, af hverju er það fjarskipti? Það þarf að dreifa þessum málum rétt þannig að rétt vinna fari í gang með hvert og eitt svið.
Ég tek undir þær athugasemdir hv. þingmanns að þarna hafi hlutir farið milli ráðuneyta sem hefðu kannski átt að vera í öðrum ráðuneytum. Ég vona að þegar hv. þingmaður og flokkur hennar komast til valda stokki hv. þingmaður og kollegar hennar upp skiptingu verkefna milli ráðuneyta.