154. löggjafarþing — 116. fundur,  4. júní 2024.

frjálst flæði ópersónugreinanlegra gagna.

912. mál
[20:49]
Horfa

Gísli Rafn Ólafsson (P) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir góða ræðu. Hv. þingmaður nefndi að Evrópusambandið væri að setja ýmsar reglur þegar kemur að þjónustu á netinu. Mig langaði einmitt að nefna að þann 17. febrúar síðastliðinn gengu í gildi tvær mikilvægar reglugerðir innan Evrópusambandsins, annars vegar reglugerð um stafræna þjónustu og hins vegar reglugerð um stafrænan markað. Reglugerðinni um stafræna þjónustu er ætlað að stöðva ólöglega og skaðlega starfsemi á netinu og útbreiðslu fallsupplýsinga á meðan reglugerðin um stafrænan markað, þar er tekið utan um hvernig gögn fólks eru notuð af stafrænum þjónustum eins og t.d. Facebook, samspil mismunandi kerfa, að ég geti valið t.d. að ég vilji nota WhatsApp-forritið til að senda skilaboð, þú vilt nota eitthvað annað en við getum enn þá talað við hvor annan þvert á þessi kerfi. Það eru líka hlutir eins og að hægt sé að fjarlægja forrit algerlega út af snjalltækjum og að vörur viðkomandi aðila komi ekki endilega fyrr í leitarvélum heldur en aðrar lausnir. Þetta hefur heilmikil áhrif á það hvernig aðilar eins og Facebook og Google og fleiri þurfa að vinna innan evrópska innan Evrópusambandsins. Þarna eru önnur dæmi um lög eða reglugerðir sem eflaust eru fjögur, fimm ár í að við innleiðum. Á meðan búa okkar notendur ekki við það að vera tryggðir fyrir því t.d. að verða fyrir skaðlegri starfsemi eða útbreiðslu falsupplýsinga.