frjálst flæði ópersónugreinanlegra gagna.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Varðandi Evrópusambandið þá er tvenns konar löggjöf. Það eru reglugerðir sem hafa bein réttaráhrif og aðildarríki þurfa ekki að innleiða. EFTA-ríki og EES, þau þurfa að innleiða þær. Tilskipanirnar þarf að innleiða. Almenna persónuverndarreglugerðin var sett í reglugerð. Það var tilskipun áður en var sett í reglugerð svo að það væru nákvæmlega sömu reglur í öllum ríkjum. Það getur vel verið að Lúxemborg gangi vel að innleiða tilskipanir sínar. Það er bara gott hjá þeim, þetta er líka lítið ríki. Það getur verið erfiðara fyrir stærri ríki. Ég veit að Ítalía er langt á eftir og það hefur verið höfðað skaðabótamál þar, t.d. mjög frægur dómur fyrir mörgum árum sem hét Francovich-málið og var skaðabótamál.
Við höfum staðið okkur svona sæmilega, ekkert sérstaklega vel, en ef við gerum það ekki þá getur einstaklingur farið í skaðabótamál. Við erum hér með frumvarpið um bókun 35 til þess að tryggja að lög frá Evrópusambandinu gangi örugglega framar okkar eigin lögum, almennum lögum, til að koma í veg fyrir svona skaðabótamál. Ég tel að við stöndum okkur alveg sæmilega en ég tel að á þessu sviði, þegar kemur að stafræna innri markaðinum, þá séum við ekki að standa okkur nægjanlega vel.
Varðandi Evrópusambandið sjálft sjáum við það sérstaklega í frumvarpinu sem við fjöllum um á eftir, sem er frumvarp til laga um innviði markaða fyrir fjármálagerninga sem byggjast á dreifðri færsluskrártækni, sem er mjög tæknilegt, að þar birtist svolítið örvænting Evrópusambandsins. Þeir eru að búa til löggjöf sem er eiginlega ætluð nýsköpunarfyrirtækjum til að þau hafi fyrirsjáanleika svo að þau geti skapað einhverjar nýjungar í lagaumhverfi sem er eiginlega ekki orðið til.
Reglugerðin sem á að fara að innleiða hér er eiginlega svona prufulöggjöf. Ég held að Íslendingar geti haft stórkostleg tækifæri með því að vera prufumarkaður fyrir vörur eða tækni í fjármálageiranum á öðrum sviðum. Þá ættum við líka að horfa til Bandaríkjanna, horfa til bandarískar löggjafar, (Forseti hringir.) að geta orðið prufumarkaður fyrir bandarísk fyrirtæki, fyrir tækni og vörur í upplýsingabyltingunni, (Forseti hringir.) ekki bara fyrir Evrópusambandið.