154. löggjafarþing — 116. fundur,  4. júní 2024.

frjálst flæði ópersónugreinanlegra gagna.

912. mál
[20:58]
Horfa

Jóhann Páll Jóhannsson (Sf):

Frú forseti. Við ræðum hér mál sem hefur flotið frekar ljúflega í gegnum þingið án mikillar efnislegrar umræðu eins og EES-mála er háttur. Það er hollt að tala um innleiðingarmál og EES-mál. Við ættum að gera það miklu oftar. Við erum hér að tala um frumvarp til laga. Þetta verður að íslenskum lögum, hvort sem reglurnar eru innleiddar með tilvísunaraðferð eða umritun. Mér finnst að sumu leyti aðdáunarvert hvað hv. þingmenn hafa sett sig vel inn í þetta mál vegna þess að það er allt of algengt að innleiðingarmál séu hanteruð sem eitthvað sem þurfi að afgreiða einhvern veginn á færibandi. En auðvitað er það þannig að ríki í EES-samstarfinu hafa talsvert svigrúm um það hvernig mál eru innleidd, t.d. eins og hv. þm. Eyjólfur Ármannsson kom inn á hérna áðan, hvort það sé gert með tilvísun eða umritun, hvernig reglur eru aðlagaðar að íslenskum aðstæðum o.s.frv., en þar skiptir líka máli að hagsmuna okkar sé gætt af krafti á vettvangi EES-samstarfsins, að sérstöðu Íslands sem eyju sé haldið á lofti og að reglur sem við þurfum að innleiða taki mið af því.

Hv. þm. Gísli Rafn Ólafsson minntist hér áðan á gullhúðun. Þar er hann að vísa til þess þegar stjórnvöld ganga lengra, setja kvaðir og íþyngjandi reglur umfram það sem leiðir með beinum hætti af EES-gerðum hverju sinni. Þetta knúði mig hingað upp. Gullhúðun held ég að sé hugtak sem er fundið upp af breskum Evrópusambandsandstæðingum en hefur öðlast nokkuð almenna viðurkenningu. Sjálfstæðisflokkurinn hefur verið í fararbroddi þegar kemur að umræðunni um þetta mál hér á Íslandi og ég held að það sé bara vel. (Gripið fram í.) Þetta hugtak hefur líka öðlast almenna viðurkenningu á vettvangi Evrópusambandsins og hjá stofnunum þess. Ég veit ekki betur en að bæði framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins og Evrópuþingið í ályktun hafi í raun varað sérstaklega við óþarfri gullhúðun einmitt á þeim forsendum að slíkt geti grafið undan þessu reglusamræmi sem Evrópusamstarfið gengur út á, að reglur séu einfaldar og tiltölulega samræmdar á þeim valdsviðum sem Evrópusamvinnan tekur til. Það getur auðvitað verið fullkomlega eðlilegt að lögfesta strangari kröfur heldur en leiðir með beinum hætti af reglum Evrópusambandsins og EES-samstarfsins en þá þurfa stjórnmálamenn að vera hreinskilnir um það hvers vegna það er gert og þeir þurfa að axla ábyrgð á því sjálfir, ekki benda alltaf í átt að Brussel og reyna þannig að firra sig ábyrgð á því sem verið er að setja í lög hverju sinni. Það er bara ósiður og flótti undan pólitískri ábyrgð.

Ég held það hafi verið mikið framfaraskref þegar hér var sett sérstaklega inn í þingskapalögin fyrir nokkrum árum ákvæði sem hljómar svona:

„Frumvörp, sem innleiða eiga reglur er byggjast á EES-gerðum, skulu að meginstefnu ekki fela í sér önnur ákvæði en þau sem leiðir af gerðinni og skal í greinargerð tilgreina hvaða gerðir frumvarpinu er ætlað að innleiða og taka fram ef gengið er lengra en lágmarkskröfur gerða kveða á um.“

Með þessari reglu sem var sett inn í þingskapalög er í rauninni orðið ólöglegt að smygla einhverju inn í innleiðingarfrumvarp án þess að gera þingheimi skýrlega grein fyrir því.

Margrét Einarsdóttir, lagaprófessor við HR, skrifaði nýlega og tók saman ágæta úttekt á innleiðingarmálum sem hafa komið frá umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytinu á undanförnum árum. Það var gert að frumkvæði þingsins. Ég held það hafi verið hv. þm. Diljá Mist Einarsdóttir o.fl. sem kölluðu eftir þessari skýrslu sem hæstv. ráðherra Guðlaugur Þór Þórðarson fól svo Margréti Einarsdóttur að vinna. Þessi skýrsla var kynnt ágætlega á fundi hjá Félagi atvinnurekenda núna á dögunum og þar kemur þessi niðurstaða fram. Í um helmingi þeirra innleiðingarfrumvarpa sem skoðuð voru þar sem gullhúðun er beitt er þess getið með skýrum hætti að verið sé að gera meiri kröfur en leiðir af lágmarkskröfum viðkomandi EES-gerðar, en rökstuðningur fyrir því að sú leið er valin er þó iðulega takmarkaður. Í hinum helmingnum er hins vegar erfitt að átta sig á hvort verið sé að gera ríkari kröfur en nauðsynlegt er. Jafnan er þörf á umfangsmikilli og tímafrekari greiningarvinnu til að átta sig á hvort verið sé að beita gullhúðun og þá að hvaða leyti.

Þetta er auðvitað sérstaklega alvarlegt vegna þess að, eins og ég kom inn á hér áðan og birtist í umræðunni hér, þá er það í rauninni hálfgert undantekningartilvik að þingmenn séu hér að fjalla um EES-innleiðingarmál, sumir hverjir af djúpri þekkingu jafnvel. Þetta er undantekningin sem sannar regluna um að þetta eru þau mál sem fá iðulega miklu minni rýni, fá miklu hraðari afgreiðslu heldur en önnur og þess vegna er ákveðinn freistnivandi, hvort sem það eru ráðherrar eða frumkvæðið kemur innan úr embættismannakerfinu eða hvernig sem það nú er hverju sinni, að lauma inn einhverjum pólitískum markmiðum án þess að taka það skýrlega fram og án þess að það valdi miklum pólitískum titringi, vegna þess að þetta eru bara innleiðingarmál, þau verður að afgreiða og við þurfum að taka á innleiðingarhallanum o.s.frv. til að standa okkur í stykkinu í EES-samvinnunni.

Svo ég botni þessa vísu þá held ég að það væri hollt að vinna fleiri samantektir á innleiðingarmálum frá undanförnum árum og skoða þau með sömu gleraugum og Margrét Einarsdóttir gerði í þessari skýrslu fyrir umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið. Ég held það megi líka taka sérstaklega undir með henni og taka undir þessa hugmynd um að hafa alltaf sérstakan kafla í lagafrumvörpum, í greinargerð innleiðingarfrumvarpa, þar sem komi fram hvort það sé verið að gera ríkari kröfur heldur en nauðsynlegt er samkvæmt lágmarksreglunum sem er verið að innleiða eða hvort einungis sé verið að fylgja þessum lágmarkskröfum.

Í þessu frumvarpi hér, sem ég ætla rétt að vona að ég fái ekki einhverjar efnislegar spurningar um í andsvörum og vona ég að þingmenn meðtaki þetta, er verið að leggja til að reglugerð (ESB) 2018/1807 verði tekin upp í íslenskan rétt með tilvísunaraðferð. Það þýðir að hún er innleidd að fullu samkvæmt orðanna hljóðan en um leið er verið að taka ákveðin kjarnaákvæði og umrita þau inn í íslensk lög. Upp á aðgengi fyrir íslenskan almenning er leitast við að þýða og staðfæra reglugerðina og fylgja orðalaginu eins og hægt er. Það er þá aðallega bara upp á gagnsæi og að hlutirnir séu aðgengilegir. Það sem mér finnst mjög jákvætt í greinargerðinni hér, þótt það sé kannski ekki sérstakur kafli um það eins og stungið er upp á í þessari skýrslu sem ég minntist á áðan, er að tekið er sérstaklega fram með mjög skýrum hætti að ekki sé gengið lengra en lágmarksákvæði reglugerðarinnar kveða á um. Orðrétt segir í greinargerðinni:

„Frumvarpið hefur ekki að geyma frávik frá reglugerðinni, nema að orðalagi þýðingar er breytt á stöku stað til að fylgja hefðum í íslensku lagamáli og hafa textann skiljanlegri fyrir almenning.“

Þetta skiptir máli en ég endurtek að það er ekkert óeðlilegt við það að lögfesta stundum talsvert strangari kröfur en leiðir af gerðum EES-samstarfsins, Evrópureglum. En það verður þá að þjóna einhverjum lögmætum og skynsamlegum markmiðum og vera í þágu almannahagsmuna, í þágu umhverfisverndar, neytendaverndar eða eitthvað í þá veru. Þá verður að koma skýrt fram hvers vegna það er gert og með hvaða hætti. Þá verða ráðherrar og stjórnmálin að axla ábyrgð á því en ekki einhvern veginn reyna að skýla sér á bak við Evrópusamvinnuna. Almenna reglan er auðvitað sú að ekki sé gengið lengra eða settar strangari reglur í þessum hefðbundnu innleiðingarmálum, en þegar það er gert er sönnunarbyrðin á ráðherra og ráðuneyti að útskýra og réttlæta það út frá þessum lögmætu markmiðum og almannahagsmunum.