154. löggjafarþing — 116. fundur,  4. júní 2024.

frjálst flæði ópersónugreinanlegra gagna.

912. mál
[21:11]
Horfa

Jóhann Páll Jóhannsson (Sf) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég tek undir með hæstv. forseta. Það er auðvitað eitthvað sem ég held að þurfi að huga sérstaklega að, hagsmunavarsla okkar í Brussel og hvaða burði við höfum til að standa í henni, hversu margir starfsmenn eru á Íslands vegum þar, einmitt til að tryggja atriði eins og hv. þingmaður kom inn á. Ég hef ekki sérstaklega rýnt þetta lagafrumvarp með þeim gleraugum en eins og hv. þingmaður bendir á þá er þetta kannski spegilmyndin af því sem þetta mál fjallar um, þessi upplýsingafrelsissjónarmið.