154. löggjafarþing — 116. fundur, 4. júní 2024.
frjálst flæði ópersónugreinanlegra gagna.
912. mál
Virðulegur forseti. Ég held að þetta sé skynsamleg ábending. Auðvitað má alltaf velta fyrir sér hvort það hefði ekki mátt dýpka umfjöllun um m.a. þessi atriði. Þetta er mál og málefnasvið sem snertir á þáttum eins og þjóðaröryggi þegar kemur að gagnageymd. Ég held því að þetta sé eitthvað sem megi gjarnan hafa á bak við eyrað.