frjálst flæði ópersónugreinanlegra gagna.
Virðulegur forseti. Þetta er hárrétt ábending. Það eru auðvitað ær og kýr Sjálfstæðisflokksins að vera í einhvers konar stjórnarandstöðu gegn sjálfum sér. Við sjáum þetta í þessum málum, við sjáum þetta í orkumálum þar sem flokkurinn er einhvern veginn alveg að fara á límingunum yfir sinni arfleifð í málaflokknum eftir að hafa farið með ráðuneyti orkumála um margra ára skeið og nú umhverfis- og auðlindamála líka, við sjáum þetta í útlendingamálum þar sem flokkurinn hefur haldið á dómsmálaráðuneytinu síðan árið 2013 með afleiðingum sem við þekkjum öll og við sjáum þetta þegar kemur að óábyrgri innleiðingu og ábyrgðarleysismenningu gagnvart því hvernig við umgöngumst EES-samstarfið og innleiðingu á EES-gerðum.