frjálst flæði ópersónugreinanlegra gagna.
Herra forseti. Ég vil þakka hv. þm. Jóhanni Páli Jóhannssyni fyrir hreint afbragðsfína ræðu. Þótt hann hafi kannski ekki endilega farið djúpt í efnisatriði þessa máls er auðvitað mjög mikilvægt fyrir okkur að ræða þetta stundum út frá stærri myndinni. Mikið var farið yfir gullhúðun, blýhúðun eða hvað við köllum þetta, í hvaða stöðu við erum þegar við erum að innleiða og annað. Mér finnst þegar við ræðum þetta mál, þótt það láti ekki mikið yfir sér, að maður taki eftir því að áhugi þingheims á því er mjög vaxandi. Mér finnst að þetta kalli svolítið til okkar stærri myndina þegar við erum alltaf í einhverri innleiðingu á málum sem koma til okkar í gegnum EES-samstarfið, hvort stóra myndin sé ekki ofur einfaldlega sú að hagsmunum Íslands sé að öllu leyti miklu betur borgið með því að vera innan Evrópusambandsins frekar en að vera í þessu EES-samstarfi. Eins ágætt og það nú er þá a.m.k. hefðum við meiri áhrif á það sem við erum að taka upp í íslensk lög.