frjálst flæði ópersónugreinanlegra gagna.
Virðulegur forseti. Ég held ég geti nú tekið undir það að hagsmunum Íslands til lengri tíma sé best borgið innan Evrópusambandsins. Fyrir því eru menningarleg, pólitísk og félagsleg rök. Einhvern veginn grunar mig nú að eftir því sem þróuninni vindur fram í Evrópu — við sjáum bara hvernig stjórnmálaumræðan er og hefur verið í Noregi síðustu tvö árin sérstaklega um EES-samstarfið og EES-samninginn — að við eigum eftir að enda þarna inni sem fullgildur meðlimur. Hvernig það mun nákvæmlega að gerast, hvort við munum einhvern veginn fylgja Noregi þar, hvort EES-samstarfið og EES-samningurinn muni af einhverjum ástæðum rakna upp einhvern tímann á næstu árum verður að koma í ljós, (Forseti hringir.) en ég tek undir ábendingu hv. þingmanns.