154. löggjafarþing — 116. fundur,  4. júní 2024.

frjálst flæði ópersónugreinanlegra gagna.

912. mál
[21:21]
Horfa

Sigmar Guðmundsson (V) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þm. Jóhanni Páli Jóhannssyni fyrir þetta. Mér finnst ágætt að renna aðeins í gegnum þetta í leiðinni úr því að við erum að ræða þetta mál. Ég velti líka fyrir mér einu hvað varðar vinnubrögðin, t.d. í þessu máli. Nú er send umsagnarbeiðni til sjö eða átta aðila og við erum endalaust að gera það þegar kemur að þessum málum. Umsagnarbeiðni er send til Neytendastofu, Persónuverndar, ríkislögreglustjóra, Samtaka gagnaversfyrirtækja, Samtaka iðnaðarins, Samtaka upplýsingatæknifyrirtækja og Skattsins en það berast í sjálfu sér engar umsagnir. Svo kemur þetta mál aftur með einhverju nefndaráliti sem segir okkur í sjálfu sér ekki mikið og er með einhverjum tæknilegum breytingum. Síðan tekur maður eftir því að við meðferð málsins í þingsal virðast þingmenn stjórnarliðsins ekki hafa mikinn áhuga á því að taka þátt. Maður veltir því fyrir sér hvort það sé orðið eitthvert almennt áhugaleysi gagnvart því (Forseti hringir.) þegar við erum að taka upp svona mál, bæði úti í samfélaginu þegar við erum að kalla eftir umsögnum og líka þegar kemur að (Forseti hringir.) yfirlegu og yfirsetu stjórnarmeirihlutans í málinu.

(Forseti (ÁsF): Ég minni þingmann á að ræðutími er ein mínúta.)