frjálst flæði ópersónugreinanlegra gagna.
Virðulegi forseti. Auðvitað er umhugsunarvert þegar um er að ræða í raun svona umfangsmiklar breytingar á lögum, þar sem verið er að innleiða risareglugerðapakka, að ekki skuli hafa borist umsagnir, sérstaklega frá stofnunum og samtökum fyrirtækja og annarra sem málið varðar samkvæmt því sem fram kemur í greinargerð frumvarpsins. Þær breytingar sem hér er verið að innleiða munu hafa talsverð áhrif á Íslandi ef mér skjátlast ekki.
Hvað varðar umræðuna hér í þinginu þá kann áhugaleysið að hafa eitthvað með það að gera að þetta er 3. umræða um málið. Maður getur kannski virt það við einhverja þingmenn að vera ekki í mjög djúpum umræðum um þetta mál í 3. umræðu (Forseti hringir.) en um leið er aðdáunarvert hve margir hafa kynnt sér það og fjalla um það af mikilli dýpt.