frjálst flæði ópersónugreinanlegra gagna.
Virðulegur forseti. Það er vandlifað í þessum heimi og alveg sérstaklega þegar kemur að Evrópusambandinu. Hv. þingmaður talaði um gullhúðun eins og það væri eitthvað gott. (Gripið fram í.) Hann talaði um gullhúðun eins og það væri a.m.k. hluti af því að það vera innan Evrópska efnahagssvæðisins. (JPJ: Nei.) — Ég er að tala hérna. (Forseti (ÁsF): Hljóð í salnum.) Hann talaði um gullhúðun. Hvað er gullhúðun? Jú, það er þegar íslenska ríkið, íslensk stjórnvöld, bæta við reglur í innleiðingu á EES-reglugerðum. Við erum líka að tala um bókun 35. Til hvers? Jú, það er þegar íslenska ríkið innleiðir ekki reglur Evrópska efnahagssvæðisins eða gerir það rangt þannig að það uppfyllir ekki kröfur Evrópska efnahagssvæðisins. Gullhúðun er það þegar við göngum lengra en kröfur Evrópska efnahagssvæðisins. Þessi meðalvegur um að innleiða gerðir rétt er grundvallaratriði í öllu samstarfi á innri markaði Evrópska efnahagssvæðisins. Við eigum ekki að ganga lengra (Forseti hringir.) en Evrópska efnahagssvæðið og við eigum ekki að ganga skemmra. (Forseti hringir.) Mig langar að heyra álit hv. þingmanns á því hvernig hann telur rétt að við eigum að innleiða reglur Evrópska efnahagssvæðisins. (Forseti hringir.) Eigum við að ganga lengra, skemmra eða gera það nákvæmlega eins og á að gera það?
(Forseti (ÁsF): Þingmaðurinn tekur sér meiri tíma en aðrir þingmenn nota hér.)
(EÁ: Hann greip svo mikið fram í fyrir mér, virðulegi forseti.)