frjálst flæði ópersónugreinanlegra gagna.
Herra forseti. Ég er alveg orðlaus. Ég verð eiginlega að biðja hv. þingmann um að hlusta á ræðuna mína því að þeim spurningum sem hann varpaði fram er svarað ágætlega þar. (Gripið fram í.)
Spurningin er: Hvernig telur hv. þingmaður að sé réttast að innleiða gerðir Evrópusambandsins? Þetta er mjög opin spurning en það er gert ýmist með tilvísunaraðferð eða umritun. Ég fjallaði sérstaklega um gullhúðun þar sem gengið er lengra heldur en lágmarksreglur Evrópusamvinnunnar kalla á. Ég varaði við því að það væri gert og benti á að stundum getur verið málefnalegt að ganga með einhverjum hætti lengra eða lögfesta einhverjar reglur, jafnvel að nota ferðina í sama frumvarpinu, (Forseti hringir.) en þá verði það að koma mjög skýrt fram í greinargerð og vera rökstutt út frá lögmætum markmiðum og (Forseti hringir.) út frá almannahagsmunum, t.d. í þágu neytendaverndar, umhverfisverndar o.s.frv.
(Forseti (ÁsF): Ég minni þingmanninn á að ræðutíminn er ein mínúta.)