154. löggjafarþing — 116. fundur,  4. júní 2024.

frjálst flæði ópersónugreinanlegra gagna.

912. mál
[21:27]
Horfa

Eyjólfur Ármannsson (Flf) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég bið þingmanninn um að grípa ekki fram í fyrir mér þegar ég er í ræðustól, það væri ágætt. Ég var einfaldlega að segja og spurði hv. þingmann að því að hann færði rök fyrir því að í einstökum tilvikum væri rétt að ganga lengra en reglur Evrópska efnahagssvæðisins kveða á um í innleiðingum. Ef við myndum gera það, telja það sjálfsagðan hlut og finna málefnalegan grundvöll fyrir því þá værum við ekki með sömu reglur og á innri markaðnum. Reglur innri markaðar eru eins og á fótboltavelli, sömu reglur eru á öllu svæðinu. Ef Ísland ætlaði alltaf að vera með gullhúðun, þótt málefnaleg rök séu fyrir því að einhverju leyti að við teljum, ekki Brussel, þá værum við að íþyngja íslensku atvinnulífi miðað við atvinnulíf annars staðar á EES-svæðinu. Það yrði erfiðara fyrir okkur að stunda atvinnustarfsemi og keppa við önnur ríki á EES-svæðinu. Það sem við höfum líka verið að lenda í er það að við höfum ekki verið að innleiða þessar reglur rétt, við höfum tafið það eða ekki veitt borgurum Evrópska efnahagssvæðisins sama rétt. Því ætla íslensk stjórnvöld að redda með einu „fixi“ með frumvarpi um bókun 35, (Forseti hringir.) vegna þess að íslensk stjórnvöld treysta sér ekki til að innleiða reglur Evrópusambandsins rétt. Ef þau gera það með gullhúðun eða gera það rangt getur það leitt til skaðabóta. (Forseti hringir.) Ég var að spyrja um það en það kom fram í svari hv. þingmanns áðan (Forseti hringir.) að hann telur gullhúðun réttlætanlega í ákveðnum tilvikum.