154. löggjafarþing — 116. fundur,  4. júní 2024.

frjálst flæði ópersónugreinanlegra gagna.

912. mál
[21:29]
Horfa

Jóhann Páll Jóhannsson (Sf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég held að hv. þingmaður þekki það ágætlega hvernig regluverk Evrópusambandsins virkar. Hann þekkir það alveg að þar eru í mörgum tilvikum settar fram ákveðnar lágmarkskröfur og ríki sem taka þátt í EES-samstarfinu hafa talsvert svigrúm um það hvernig kröfurnar og reglurnar eru staðfærðar, hversu langt er gengið í einstökum þáttum og geta auðvitað í einhverjum tilvikum talið rétt að bæta inn einhverjum kröfum o.s.frv. Það er bara hluti af því að vera löggjafi og setja reglur. Við erum hluti af EES og þar eru ákveðnar lágmarkskröfur á ákveðnum sviðum. Stundum er gengið eitthvað örlítið lengra í þágu einhverra lögmætra markmiða. Það er ekkert óeðlilegt við það, svo lengi sem það er ekki einhvern veginn verið að smygla því inn með óheiðarlegum hætti eða kenna Evrópusambandinu (Forseti hringir.) að ósekju um að eitthvað sé gert með einhverjum hætti. (Forseti hringir.) Ef hv. þingmaður vill kalla það gullhúðun í öllum tilvikum (Forseti hringir.) þá finnst mér það ekki endilega málefnaleg leið til að hugsa um það hvernig lög og reglur eru sett.

(Forseti (ÁsF): Þingmaðurinn notaði of langan ræðutíma.)