154. löggjafarþing — 116. fundur,  4. júní 2024.

frjálst flæði ópersónugreinanlegra gagna.

912. mál
[21:30]
Horfa

Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir (V):

Virðulegi forseti. Ég ætla ekki að hafa mörg orð um þetta mál en eins og fram hefur komið hér í kvöld finnst mér það spegla ákveðinn kúltúr, ákveðin vinnubrögð. Ég kom upp í andsvörum fyrr í kvöld til að forvitnast um það hverjar umræðurnar um málið hefðu verið í nefndinni. Þá kemur í ljós að hér eru ekki viðstaddir þingmenn meiri hlutans og nefndarmenn eru ekki margir hér. Mér finnst þetta svo sérstakt af því að þetta mál eins og það birtist mér virðist hið fínasta efnislega. Markmiðið er að tryggja frjálst flæði ákveðinna gagna innan Evrópska efnahagssvæðisins. Gögnin sem um ræðir eru ópersónugreinanleg og hér er um að ræða gögn sem þjóna viðskiptahagsmunum.

Ég hjó eftir því þegar ég fór að skoða þetta hér í kvöld, af því að nú sit ég ekki í þeirri nefnd sem hefur málið til meðferðar, að óskað var eftir umsögnum frá Neytendastofu, sem manni finnst augljóst að gera í samhengi við þá efnisþætti sem hér eru undir, óskað var eftir umsögn frá Persónuvernd, óskað var eftir umsögn frá ríkislögreglustjóra, Samtökum gagnavera, Samtökum iðnaðarins, Skattinum og einhverjum fleirum en engar umsagnir liggja fyrir í málinu. Nú nefni ég þetta ekki til að lasta þá aðila sem voru beðnir um umsögn af því að ég veit það og við þekkjum það öll sem hér störfum að margar opinberar stofnanir fá mjög margar svona umsagnarbeiðnir og þurfa einfaldlega að forgangsraða því hverju þær svara. Þegar maður skoðar málið sjálft þá sést líka þar sem vísað er til tilurðar málsins að drög að frumvarpinu voru birt til samráðs í samráðsgáttinni og þar var líka ákveðnum aðilum gert viðvart um málið en engar umsagnir bárust. Við erum bæði með það í aðdraganda málsins í ráðuneytinu, svo hér fyrir þingi að engar umsagnir liggja fyrir.

Mér finnst það umhugsunarvert og mér finnst það sérstakt af hálfu ríkisstjórnarflokkanna, af því að þeir eru einna uppteknastir af því hver hallinn sé og að við séum einmitt, eins og við höfum rætt hér í kvöld, að gullhúða, að blýhúða og allt þetta, að það virðist ekki trufla meiri hlutann neitt sérstaklega að rýna málið ekki betur en raun ber vitni. Þetta segi ég auðvitað líka með þeim fyrirvara að ég veit að þeir, væntanlega lögfræðingar, sem hafa smíðað þetta í ráðuneytinu — mér sýnist þeir hafa leyst þetta verkefni mjög vel úr hendi. Það má kannski líka nálgast þetta úr hinni áttinni, að þegar við stöndum að svona lögfestingu sé auðvitað ekki gott að við séum mörgum árum á eftir í því að taka upp reglugerðir og að það sé látið liggja í mjög langan tíma.

Ég nefndi það í andsvörum og kannski var það sú grein sem vakti mestan áhuga minn, þessi umfjöllun um aðgang yfirvalda að gögnum. Þó að þetta mál hafi ekki beinlínis með það að gera að tengjast sakamálum eða rannsóknum þeirra þá getur auðvitað reynt á þessa þætti málsins í öllum samskiptum. Mér fannst þess vegna áhugavert að hér erum við með grein sem fjallar um það að lögin hafi ekki áhrif á heimildir íslenskra yfirvalda til að óska eftir eða fá aðgang að gögnum við framkvæmd opinberra skyldustarfa sinna og það sé ekki heimilt að synja lögbærum yfirvöldum um aðgang að gögnum með vísan til þess að gögnin séu unnin í öðru aðildarríki EES-samningsins. Hér erum við að tala um það ef lögbært yfirvald fær ekki aðgang að gögnum aðila sem notar gagnavinnsluþjónustu. Maður getur alveg séð fyrir sér þá anga á þessu máli.

Eins og ég segi þá virðist mér inntak þessa máls vera hið fínasta. Ég staldra aftur við og vil nefna og ítreka, af því að þetta er stef sem við erum ekki að sjá í fyrsta sinn, að málaflokkur fjarskipta er að koma hérna upp og er, að manni finnst stundum, einfaldlega til umfjöllunar í röngu ráðuneyti. Fjarskiptin hafa dálítið goldið þess hvernig ríkisstjórnarflokkarnir fóru í það í síðustu stjórnarmyndunarviðræðum að taka bara einfaldlega Stjórnarráðið og kasta því upp og láta púslin lenda einhvers staðar og einhvers staðar. Mér hefur fundist það sjást einna skýrast í þessum málaflokki. Fjarskiptin eru dálítið týnda barnið í þessu stjórnarsamstarfi eða kannski öllu heldur í þessu Stjórnarráði.

Ég vildi bara koma upp til að nefna það að mér finnst miður að ekki hafi verið kallað með meiri krafti eftir sjónarmiðum þeirra sem sannarlega hafa hagsmuna að gæta af þessu máli. Athugasemdir mínar lúta fyrst og fremst að því og ætla ég að öðru leyti ekki að tjá mig um málið og vona sannarlega að umfjöllun mín skiljist ekki öðruvísi en svo að ég er hlynnt efnisinntaki þess.