154. löggjafarþing — 116. fundur,  4. júní 2024.

frjálst flæði ópersónugreinanlegra gagna.

912. mál
[21:38]
Horfa

Andrés Ingi Jónsson (P) (andsvar):

Herra forseti. Mig langar að byrja á að þakka hv. þingmanni fyrir að draga saman þetta samhengi við önnur mál sem hafa komið frá ráðuneytinu sem leggur þetta frumvarp fram. Ég deili áhyggjum hv. þingmanns af því hvernig fjarskiptamálum er fyrir komið í Stjórnarráði Íslands. Þeim var hent á milli eins og einhverri skopparakringlu þegar Stjórnarráðið var stokkað upp, sett í nýtt og lítið ráðuneyti og ekki tryggt að nauðsynleg sérfræðiþekking væri til staðar. Innviðir sem eru undirstaða þekkingariðnaðarins eru því ekki í nógu góðum málum, verður að segjast. Í umhverfis- og samgöngunefnd, þar sem ég og hv. þingmaður sitjum bæði, höfum við t.d. fundið þetta í umfjöllun um frumvörp um fjarskipti sem hafa komið til umfjöllunar nefndarinnar nokkrum sinnum undanfarið. Þar er bæði slæmt þegar ráðuneytið er að innleiða Evrópureglur og gerir það bara ekki nógu vel og þegar ráðuneytið ákveður að vera á undan Evrópusambandinu og gerir það ekki heldur nógu vel. Þannig að þegar ég stend frammi fyrir svona máli sem á yfirborðinu lítur einmitt ágætlega út, það er verið að búa til sameiginlegan markað um frjálst flæði gagna á EES-svæðinu, þá læðist alltaf að mér þessi ónotatilfinning um að hér sé eitthvað sem geti verið að klikka, bara vegna þess að það er reynslan af ráðuneytinu.

Mig langar að spyrja hv. þingmann: Hvernig náum við að vinna okkur út úr þessu? Þurfum við bara að bíða eftir annarri uppstokkun ráðuneyta og burðugara ráðuneyti utan um fjarskiptamál?