154. löggjafarþing — 116. fundur,  4. júní 2024.

frjálst flæði ópersónugreinanlegra gagna.

912. mál
[21:40]
Horfa

Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir (V) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrirspurnina og þóttist nú vita að hann vissi hvað ég ætti við þegar ég var að tala um önnur mál sem við höfum séð á sviði fjarskipta sem hafa einhvern veginn goldið þess hvað það hefur verið mikið rót í Stjórnarráðinu. Þetta finnst mér kannski líka vera ákveðinn lærdómur um það að erfiðar stjórnarmyndunarviðræður, sem ég held að hafi tekið einhverjar tíu vikur hjá ríkisstjórn sem þá þegar hafði starfað saman í fjögur ár, höfðu bara alvarleg áhrif á ákveðna festu í Stjórnarráðinu. Að það eigi að vera að róta með sérfræðiþekkingu á milli ráðuneyta og málaflokka, það hefur bara áhrif, eins og í þessu fjarskiptamáli sem umhverfis- og samgöngunefnd hefur verið með til meðferðar þar sem við sjáum mjög skýra þætti sem varða löggæslu, þekkingu á alþjóðlegum þáttum sakamálarannsókna og síðan fjarskiptaþáttunum og einhvern veginn er hvorugt fyrir hendi hjá þeim eflaust mjög svo færu sérfræðingum sem eru með þetta mál til meðferðar. Sérfræðiþekkingin er einfaldlega ekki á þessu sviði.

En hvað skal gera? Ég held að úr þessu sé tvennt í stöðunni, það er að bíða þess að ríkisstjórnin springi og svo styttist að öðrum kosti í kosningar. Að öllu gamni slepptu endurspeglar það ákveðna vanvirðingu fyrir verkefnunum að fara með málaflokkana eins og gert var í síðustu samningaviðræðum þar sem ekki bara heitum ráðherrastóla var breytt heldur málaflokkar færðir á milli af því bara. Auðvitað þarf stundum að gera það og auðvitað er stundum beinlínis gott að fara í einhverja svoleiðis vinnu en þarna þjónaði hún engum öðrum tilgangi en að þjóna hagsmunum ráðherranna sjálfra.