frjálst flæði ópersónugreinanlegra gagna.
Forseti. Hv. þingmaður talaði aðeins um hugtakið gull- eða blýhúðun sem Sjálfstæðisflokkurinn hefur gert að sínum helsta tilgangi hér á þingi undanfarin misseri. Ég hef nefnilega dálitlar áhyggjur af því að þessi þráhyggja Sjálfstæðisflokksins fyrir því að sýna að hann ætli nú aldeilis ekki að gera meira en Brussel krefst af okkur að lágmarki hafi haft tvennt í för með sér.
Annars vegar að það sé litið hornauga að leggja fram metnaðarfyllri lagasetningu hér á Íslandi en kemur út úr málamiðlunarviðræðum í Brussel. Það er ekkert að því að innleiða strangari eða metnaðarfyllri reglur hér en í Evrópu að meðaltali ef það er bara gert fyrir opnum tjöldum og það fer ekkert á milli mála að við erum að ganga lengra.
Hins vegar held ég að þessi þráhyggja Sjálfstæðisflokksins fyrir því að sýna að þau séu duglegust að hata Brussel verði til þess að þau gangi allt of oft of skammt í innleiðingum. Og þá lendum við í þeirri vandræðalegu stöðu, eins og við erum að upplifa hér á þingi fyrir sumarhlé, að vera að samþykkja í fjórða sinn breytingu á lögum um hollustuhætti og mengunarvarnir vegna þess að umhverfisráðuneytið tálgaði svo nærri kjarnanum í innleiðingu á regluverki utan um niðurdælingu koldíoxíðs að ESA komst að því að við værum ekki að uppfylla EES-samninginn. Þannig að það hefur þurft að reyna aftur og aftur að gera þetta rétt. Núna mögulega tekst það í fjórðu tilraun. Óttinn við gullhúðun er því að hafa slæm áhrif á innleiðingar.