frjálst flæði ópersónugreinanlegra gagna.
Virðulegi forseti. Ég held að umræðan, a.m.k. hér í þessum sal, um gullhúðun og blýhúðun sé hræðsla ríkisstjórnarflokkanna við eigin vinnubrögð. Það er verið að bæta í og svo er verið að draga mál úr hömlu og svo er verið að gera eins og á að gera hérna núna enn eitt vorið, að afgreiða í einu kasti fjöldamörg mál.
Auðvitað er markmiðið með þessum innleiðingum að tryggja ákveðið samræmi. Ég myndi segja að í því samhengi sé mín almenna afstaða sú að það eigi að láta þetta vera. Það má bæta við mál við þær aðstæður að vinnubrögðin standi þá undir nafni en það sé skýrt hvar frávikin eru, að þess sé getið í málinu sjálfu, það komi fram í greinargerð, það komi fram í nefndaráliti. Það er einmitt það sem við erum að gagnrýna hér í kvöld, að þegar við sem ekki sitjum í nefndinni höfum áhuga á þessu máli og vinnubrögðunum þar að baki þá er það fullkomlega ógegnsætt hvað gerðist og hvernig vinnubrögðunum var hagað. Hvað mig varðar þá finnst mér ekki vera hægt að leggja á borðið eitthvert eitt rétt svar eða algilt svar sem á við um allar þessar innleiðingar, að það megi engu bæta við eða ekki herða á skilyrðum. En þá finnst mér að það þurfi að fylgja, eins og fram hefur komið í umræðum hér í kvöld og lagaprófessorar eins og dr. Margrét Einarsdóttir hafa fjallað um, að það sé skýrt hvað sé verið að gera og sjáanlegt öllum almenningi og sjáanlegt löggjafanum sjálfum hvaða mál eru að koma frá ráðuneytunum og hverju þau hafa sjálf bætt í stabbann.