frjálst flæði ópersónugreinanlegra gagna.
Virðulegi forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir ræðu sína. Hún fór ágætlega yfir hugtakið vinnsla persónuupplýsinga í persónuverndarreglugerðinni. Það má t.d. benda á að varðveisla eða geymsla skjala er vinnsla. Það að setja gögn í gagnaver og geyma þau þar er vinnsla. Þeir nota reyndar ekki hugtakið geymsla, þeir nota hugtakið varðveisla.
Mig langar að spyrja hv. þingmann hvort hún telji nægjanlegt að þessi mikilvæga reglugerð Evrópusambandsins um ramma um frjálsræði ópersónulegri upplýsinga í Evrópusambandinu sé nægjanlega innleidd með þessari tilvísunaraðferð, hvort það sé raunverulega nægjanlegt að gera þetta með því einfaldlega að þýða reglugerðina — ég var að skoða þýðinguna og þetta eru 10 blaðsíður — og gera það með þessari tilvísun í reglugerð.
Svo segja þeir í greinargerðinni, með leyfi forseta:
„Áformað er að lögfesta reglugerðina í heild sinni skv. 2. gr. frumvarpsins. Þar sem um er að ræða nýja lagasetningu er sú leið farin að setja inn í frumvarpið efni nokkurra kjarnaákvæða reglugerðarinnar til þess að gera hana aðgengilega fyrir almenning, auk sérákvæða um tengilið og reglugerðarheimild til að kveða nánar á um framkvæmd laganna, verði frumvarpið óbreytt að lögum. Leitast er við að fylgja orðalagi ákvæða reglugerðarinnar svo ekki komi upp misræmi.“
Mig langar að spyrja hv. þingmann: Hefði ekki verið miklu réttara að lögfesta reglugerðina svipað og var gert með almennu persónuverndarreglugerð Evrópusambandsins, þar sem kjarnaákvæðin voru tekin og sett í íslensku lögin, lög um persónuvernd, og svo var reglugerðin sjálf, þýðing á henni, sem fylgiskjal með lögum, miðað við að þetta eru lög nákvæmlega sama eðlis? Munurinn er bara persónugreinanleg og ópersónugreinanleg.