frjálst flæði ópersónugreinanlegra gagna.
Forseti. Ég þakka hv. þm. Eyjólfi Ármannssyni fyrir andsvarið. Það er auðvitað alltaf álitamál þegar kemur að innleiðingu gerða, það er vissulega hægt að gera það á ýmsa vegu eins og hv. þingmaður veit. Þar vegast á þessi sjónarmið, annars vegar að löggjöfin sé skýr á íslensku, að það sé skýrt að búið sé að innleiða nákvæmlega öll efnisatriði reglugerðarinnar. Það var líka, hvað eigum við að segja, ákveðið rautt flagg þegar ég var að lesa greinargerðina að tekin er ákvörðun um að breyta einhverju orðalagi til að gera hlutina skiljanlegri eða einfaldari á íslensku og meira í samræmi við íslenska málhefð. Það er alltaf ákveðin hætta þegar verið er að þýða hugtök, sérstaklega í lagamáli ekki síst, vegna þess að það að merking orða, merking setninga og orðasambanda sé algerlega kýrskýr fyrir hinum almenna borgara er auðvitað lykilatriði í réttarríki. Þarna vegast á sjónarmið um hvað skuli gilda ef upp koma álitamál um hvort textinn þýði ekki það sama, íslenski textinn þýði mögulega ekki það sama og enski textinn eða á hvaða tungumáli sem hann er, og hvað eigi þá að gilda.
Ég er almennt hlynnt því að íslensk lög séu bara alfarið á íslensku. Þau eiga náttúrlega að vera það og eru það samkvæmt okkar stjórnskipan. En miðað við það hversu lítil áhrif mér virðist þessi lög munu hafa á íslenska framkvæmd og íslenska löggjöf miðað við það sem þarna kemur fram þá hef ég ekki stórar áhyggjur í þessu tiltekna máli. En ég vil taka undir þessar áhyggjur þingmannsins almennt varðandi það að ég myndi segja að best færi á því, eins og var gert með (Forseti hringir.) innleiðingu reglugerðar um persónuvernd og meðferð persónuupplýsinga, (Forseti hringir.) að setja það allt á íslensku og leggja bara þá vinnu í það sem þarf til að gera löggjöfina þannig að hún bjóði ekki upp á misskilning á íslensku máli.
(Forseti (ÁsF): Ég minni þingmanninn á að hann fór langt fram úr þeim ræðutíma sem hann hafði til umráða.)