154. löggjafarþing — 116. fundur,  4. júní 2024.

frjálst flæði ópersónugreinanlegra gagna.

912. mál
[22:07]
Horfa

Eyjólfur Ármannsson (Flf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir svarið. Ég lít þannig á þetta frumvarp að innleiðing með þessum hætti og með þessari tilvísun sé ekki nægilega góð aðferð. Ég tel líka að innleiðingin á almennu persónuverndarreglugerðinni hafi ekki verið nægilega góð. Eini munurinn á þessari innleiðingu og innleiðingunni á almennu persónuverndarreglugerðinni er að hér er um ópersónugreinanleg gögn að ræða en í innleiðingunni á almennu persónuverndarreglugerðinni var um persónugreinanleg gögn að ræða. Þar eru tvö atriði sem eru undir. Það er friðhelgi einkalífsins, 10. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, og svo stjórnarskrárákvæði um friðhelgi einkalífsins. Líka efnahagslegi þátturinn sem var frjáls flutningur gagna. Við þýddum það sem frjálsa miðlun gagna. „Free movement“ á gögnum er frjáls flutningur gagna. Frjáls miðlun gagna er „free dissemination“ á gögnum. Það er algjör grundvallarmisskilningur í nafni reglugerðirnar.

Ég tel að við eigum að taka þetta nákvæmlega eins. Þetta er ein af grunnstoðum hins stafræna innri markaðar Evrópusambandsins, sem er persónuverndarreglugerðin og líka frjálst flæði ópersónulegra gagna. Af hverju? Jú, af því að Evrópusambandið er að reyna að ná að vera á sama samkeppnisgrundvelli og Bandaríkin. Bandaríkin eiga hreinlega upplýsingabyltinguna eins og hún leggur sig. Á hverjum einasta degi förum við á Google og Facebook og þetta eru allt saman bandarískt fyrirtæki. Ég veit ekki um eitt einasta evrópska fyrirtæki sem hefur náð að hasla sér völl á þessu sviði.

Þessi innleiðing sýnir að við erum ekki að standa okkur þegar kemur að íslenskum gögnum. Ég tel t.d. að það sé ekki nægjanlega komið inn á þetta í lögum um bókhald. Hvað með gagnasafn skjalasafn Vegagerðarinnar og Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar? Öll deiliskipulag landsins? Þetta eru allt ópersónugreinanleg gögn sem má geyma erlendis rafrænt og ég er viss um að það er hægt að geyma þau á miklu ódýrari hátt erlendis en hér á landi.

Og mig langar að spyrja hv. þingmann (Forseti hringir.) að því hvort við séum að standa okkur með þessari innleiðingu með þessum hætti, (Forseti hringir.) hvort vel sé að verki staðið og þá líka varðandi fyrri reglugerð.