frjálst flæði ópersónugreinanlegra gagna.
Forseti. Ég þakka hv. þingmanni aftur fyrir samtalið. Ég held akkúrat að miðað við það sem þingmaðurinn bendir hér á þá séum við kannski ekki að standa okkur nógu vel í því að gæta samræmis í orðnotkun. Það held ég reyndar að sé vandamál mjög víða í íslenskri löggjöf og væri auðvitað ráð að meiri áhersla væri lögð á það. Ég hef reyndar sagt að frá því að ég byrjaði hér á þingi hefur það því miður að mörgu leyti komið mér á óvart hversu — ég myndi segja að við gætum vandað okkur miklu, miklu betur við setningu löggjafar.
Lög um persónuvernd og meðferð persónuupplýsinga er auðvitað frumkvöðulslöggjöf í heiminum af hálfu Evrópusambandsins og t.d. þráuðust bandarísk fyrirtæki lengi við að þurfa að fylgja þessu. Maður var að lenda í því þegar maður fór inn á bandaríska heimasíðu: Þú getur ekki skoðað þessa síðu af því að þú ert á Íslandi og í Evrópu og þið eruð með svo hræðilega strangar reglur að við getum bara ekki talað við ykkur og þið megið ekki skoða þessa síður og annað slíkt. Þau töpuðum því stríði. Þau töpuðu því. Kannski erum við hinum megin við borðið þegar kemur að þessu. Það getur verið að við séum á hinum endanum, eða að þarna séu Bandaríkin akkúrat mögulega komin lengra en við. En þá ætti þetta frumvarp kannski að vera skref í rétta átt.
Þau dæmi sem hv. þingmaður tekur um aðra löggjöf þar sem er rætt um ópersónugreinanleg gögn og söfnun þeirra og vinnslu þeirra, það sem ég les úr þessu og les úr greinargerðinni er að það eru engar kröfur þar um staðsetningu gagnanna og það er í rauninni það eina sem þetta mál snýst um. Það eina sem þetta mál snýst um er að afnema þessa einu hindrun (Forseti hringir.) fyrir vinnslu upplýsinga, ekki neinar aðrar. Í fljótu bragði get ég ekki séð (Forseti hringir.) að þetta sé að fara að hafa alvarleg áhrif á löggjöf hér á landi. En ég tek undir með hv. þingmanni að við þyrftum að vanda betur til verka og (Forseti hringir.) passa betur upp á samræmi í orðanotkun í íslenskri löggjöf, líka þeirri sem er innleidd og þýdd úr öðrum tungumálum.