154. löggjafarþing — 116. fundur,  4. júní 2024.

frjálst flæði ópersónugreinanlegra gagna.

912. mál
[22:12]
Horfa

Sigmar Guðmundsson (V):

Herra forseti. Ég vil þakka þingmönnum fyrir yfirgripsmikla yfirferð um þetta mál sem eins og fram hefur komið lætur kannski ekki mikið yfir sér en hefur svolítið gefið þingmönnum tækifæri til að fara vítt og breitt yfir það hvernig við erum að innleiða. Hér hefur verið rætt um blýhúðun og gullhúðun og er samningurinn um Evrópska efnahagssvæðið undir og jafnvel Evrópusambandið sjálft. Svo hafa menn auðvitað verið að tala um persónuverndarlög og þýðingar og þar fram eftir götunum. Því hefur mjög víða verið komið við og áður en lengra er haldið langar mig að hrósa hæstv. forseta fyrir góða fundarstjórn og að hafa haldið þingmönnum vel við efnið, að menn virði tímamörk. Það vill stundum verða þannig þegar mönnum er heitt í hamsi og tala um efnið vítt og breitt að erfitt getur verið að virða þau tímamörk sem áskilin eru. Mér finnst gott að forseti minni okkur þingmenn á það, bæði með bjöllu og jafnvel með góðum orðum eftir að ræðum og andsvörum er lokið, að við þurfum auðvitað að virða tímann.

Nú er ég auðvitað ekki í þeirri þingnefnd sem fjallar um þetta mál. Eins og fram hefur komið erum við að ræða um frjálst flæði ópersónugreinanlegra gagna. Markmiðið er að tryggja frjálst flæði ópersónugreinanlegra gagna innan Evrópska efnahagssvæðisins. Frumvarpið sjálft er örfáar lagagreinar og mig langar kannski að nefna að ef ég hefði verið í þingnefndinni sjálfri þá hefði ég kannski staldrað aðeins við 5. gr. og mögulega kallað eftir einhverjum gestum þar eða kallað sérstaklega eftir einhverri viðbótarþekkingu á því máli. En það er auðvitað ekki staðan hérna núna og kannski pínu bagalegt að þingmenn stjórnarliðsins sem sitja í nefndinni skuli ekki vera með okkur í umræðunni í kvöld, en hér hefur stjórnarandstaðan meira verið að bera uppi bæði efnisumræðuna um þetta mál og líka víðari myndina eins og ég rakti áðan.

Það kemur fram í greinargerðinni að markmiðið með reglugerðinni sem hér á að innleiða sé að lögfesta meginreglu um frjálst flæði gagna, annarra en gagna sem innihalda persónuupplýsingar, innan Evrópska efnahagssvæðisins. Þar segir:

„Frjálst flæði persónuupplýsinga innan EES var tryggt með reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins […] um vernd einstaklinga í tengslum við vinnslu persónuupplýsinga og um frjálsa miðlun slíkra upplýsinga, eins og hún var tekin upp í samninginn um Evrópska efnahagssvæðið með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar …“

„Löggjöfin miðar að því að auðvelda viðskipti þvert á landamæri innan Evrópska efnahagssvæðisins (EES) og skapa einn gagnamarkað í samræmi við frelsi til að veita þjónustu samkvæmt EES-samningnum.“

Við höfum aðeins verið að tala um það í umræðum um þetta mál að þegar við erum að vinna þingmál í nefndunum skiptir alveg gríðarlega miklu máli og er algjört lykilatriði til að dýpka skilning þingmanna á því sem um er að ræða að fá gesti á nefndarfundi til að fara yfir efnisatriði mála. Þannig háttar til í þessu máli að sendar voru út umsagnarbeiðnir til ýmissa aðila til þess að reyna að fá umsagnir og dýpka þannig skilning nefndarmanna sem miðla síðan þekkingu sinni til okkar hinna sem ekki eigum sæti í þessum nefndum. Ég hef hoggið eftir því að sendar voru út umsagnarbeiðnir á sjö aðila. Þær voru sendar út 16. apríl 2024 og gefinn frestur til 30. apríl 2024. Umsagnarbeiðni var send til Neytendastofu, Persónuverndar, ríkislögreglustjóra, Samtaka gagnavera, Samtaka iðnaðarins og Samtaka upplýsingatæknifyrirtækja, og svo fékk Skatturinn eina slíka.

Við þingmenn þekkjum að það er mjög algengt að verið sé að senda út mikið af umsagnarbeiðnum til sömu aðila úti í samfélaginu sem eiga að veita umsögn um þau mál sem eru til vinnslu í þinginu hverju sinni og kemur kannski ekkert rosalega mikið á óvart að Persónuvernd, Neytendastofa og jafnvel Samtök iðnaðarins og Skatturinn geti kannski ekki verið að senda inn umsagnir í hvert sinn því að það eru margar umsagnarbeiðnir sem berast frá þinginu til þessara aðila, en það vekur athygli manns að enginn sendi umsögn. Menn hafa verið að nefna það í umræðunni að kannski verður það til þess að sjálfvirknin í þessum innleiðingum verður kannski svolítið mikil. Það hefur leitt þingmenn inn í að tala um það þegar verið er að bæta einhverju við þær kröfur sem gerðar eru í innleiðingum með heimatilbúinni viðbót og eins og hefur oft tíðkast í gegnum tíðina er ekki tilgreint sérstaklega hver innlenda viðbótin er, sem er auðvitað nokkuð bagalegt. En umræðan um það hefur stundum farið út um víðan völl og þá er verið að kenna Evrópusambandinu um það íþyngjandi regluverk sem verður oft til þegar íslensk stjórnvöld og ráðuneytin nota ferðina og bæta einhverju við það sem kemur að utan.

Hér undir er auðvitað samningurinn um Evrópska efnahagssvæðið sem er eitt víðtækasta alþjóðasamstarf sem Ísland tekur þátt í. Hugsunin þar er auðvitað sú að við náum inn á þennan innri markað sem gerir ekki aðeins íslenskum fyrirtækjum kleift að stunda sína starfsemi hvarvetna á Evrópska efnahagssvæðinu heldur geta Íslendingar líka aflað sér menntunar og starfað í öllum ríkjum EES. Það virkar síðan í báðar áttir eins og við þekkjum. Eins og kemur fram á vef Stjórnarráðsins opnar þetta auðvitað líka á möguleika fyrir íslenska vísinda- og fræðimenn til að taka þátt í rannsóknastarfsemi með samstarfsaðilum hvaðanæva af Evrópska efnahagssvæðinu, svo aðeins séu nefnd fáein dæmi. Á þessu vefsvæði er fjallað svolítið um upptöku og innleiðingu gerða en það sem mig langaði að staldra við er að í kaflanum um hagsmunagæslu er talað um að utanríkisþjónustan sinni margháttaðri hagsmunagæslu innan EES-samstarfsins sem felst í því að koma sjónarmiðum Íslands á framfæri við mótun löggjafar innan ESB og fylgjast sérstaklega með íslenskum hagsmunum. Reynt er að hafa áhrif og koma sjónarmiðum á framfæri eftir þörfum og eiga mögulega einhverjar viðræður um nauðsynlegar aðlaganir og allt þetta. Svo segir hér, með leyfi forseta, í þessum textastubbi á vef Stjórnarráðsins um samninginn um Evrópska efnahagssvæðið:

„Lykillinn að árangursríkri hagsmunagæslu við mótun löggjafar innan EES er að koma sjónarmiðum Íslands að snemma í ferlinu.

Samkvæmt EES-samningnum hefur Ísland margvísleg tækifæri til að hafa áhrif á mótun nýrra EES-reglna. Nýta þarf þessi tækifæri. Íslenskum sérfræðingum býðst þátttaka í sérfræðingahópum sem framkvæmdastjórnin hefur samráð við um mótun löggjafar. Ísland á sæti (án atkvæðisréttar) í stjórnarnefndum þeirra undirstofnana framkvæmdastjórnar ESB sem EFTA-ríkin innan EES eru þátttakendur í og þá er íslenskum ráðherrum oft boðin þátttaka í óformlegum ráðherrafundum ESB. Mikilvægt er að öll slík tækifæri séu notuð til þess að koma sjónarmiðum Íslands á framfæri.“

Alltaf þegar ég les eitthvað þessu líkt, les sambærilegan texta eða heyri þetta í opinberri umræðu þá hvarflar hugurinn að enn stærri myndinni. Hún er sú að þótt samningurinn um Evrópska efnahagssvæðið hafi gert það að verkum að miklar framfarir urðu á íslensku samfélagi, bæði í efnahagslegu tilliti en einnig hvað varðar allt daglegt líf borgaranna með því að við urðum óhindrað þátttakendur í þessum innri markaði á ákveðnum sviðum, sem gildir líka í hina áttina, þá hefur það alltaf öskrað á okkur, og við sjáum það í kaflanum um hagsmunagæsluna sem ég var að nefna, að við erum í talsverðum vandræðum við að hafa áhrif á það sem hingað kemur til okkar. Það leiðir mann alltaf aftur að þeirri niðurstöðu, eins og við í mínum flokki erum alltaf að tala um, að auðvitað er hreinasta og besta leiðin þegar við erum að reyna að tryggja hagsmuni lands og þjóðar í samskiptum við vinaþjóðir okkar í Evrópu að vera hreinlega inni í Evrópusambandinu, stíga það skref, sitja þar við borðið og hafa alltaf beinan aðgang að öllum þeim ákvörðunum sem verið er að taka og geta myndað bandalag með öðrum ríkjum um sameiginlega hagsmuni. Síðan reyna menn auðvitað eftir fremsta megni að ræða sig niður á einhverja sameiginlega niðurstöðu því að svona samstarf fullvalda ríkja, stórra sem smárra, gengur ekki upp til lengri tíma ef um alla hluti er stanslaus ófriður. Ég vildi kannski nota tækifærið þegar við erum að ræða þetta litla mál sem lætur ekki mikið yfir sér, um frjálst flæði ópersónugreinanlegra gagna, til að fara yfir þessa hluti sem ég hef verið að nefna hér. Á endanum verður þetta væntanlega allt samþykkt eftir kúnstarinnar reglum og það er að sjálfsögðu ekki þannig, þótt þingmenn taki mikinn þátt í umræðunni um þetta mál, að einhver mikil flækja verði í atkvæðagreiðslunni sjálfri.

Nú er ég kannski kominn út fyrir efnisatriði þessa máls en mig langar svolítið að árétta að þegar við erum hér langa þingfundadaga á kvöldin og seinni partinn og höfum það jafnvel hangandi yfir okkur að vera hér næstu kvöld í næstu viku, ekki vitandi hvaða mál verða kláruð og hverjum verður ýtt til hliðar í þessum samningaviðræðum, sem eru auðvitað miklu erfiðari á milli stjórnarflokkanna en á milli stjórnar og stjórnarandstöðu eins og við þekkjum, þá sakna ég þess svolítið að sjá ekki fleiri þingmenn úr stjórnarliðinu koma hingað og taka þátt í umræðu um mál. Það er jú auðvitað þannig að þingfundirnir eru oft svolítið lengri vegna þess að það gengur illa hjá þessum flokkum að ná saman um mál eins og er kannski staðan núna. Þá væri kærkomið að heyra meira um það sem stjórnarliðar hafa að segja um tiltekið mál, að það sé ekki alltaf stjórnarandstaðan sem beri uppi umræðuna þegar þannig háttar til. Auðvitað getur verið allur gangur á því hversu mikil tjáningarþörf þingmanna er í hinum ýmsum málum en ég beini því vinsamlega til þeirra í stjórnarliðinu að það væri mjög gaman og gagnlegt, svo ekki sé talað um þegar við erum að ræða mál eins og frjálst flæði ópersónugreinanlegra gagna, að heyra meira um afstöðu þeirra til málsins.