154. löggjafarþing — 116. fundur,  4. júní 2024.

frjálst flæði ópersónugreinanlegra gagna.

912. mál
[22:26]
Horfa

Andrés Ingi Jónsson (P) (andsvar):

Frú forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir góða yfirferð í máli sem lætur lítið yfir sér en snertir á framtíðinni. Þetta frumvarp byggir á Evrópureglum sem fóru í gegn í Brussel árið 2018. Frá þeim tíma hefur magn gagna sem framleidd eru á hverju ári sennilega fimmfaldast. Samfélagið er að verða gagnadrifið og Evrópusambandið hefur metnað til að ná forskoti í þeirri framtíðarmynd. Eins og kom fram í andsvörum fyrr í kvöld hafa Bandaríkin verið forystusveitin þegar kemur að gagnaheiminum en Evrópusambandið settist niður og hugsaði hvernig hægt væri að ná þessu forskoti. Þá fæddust þessar tvíburareglugerðir sem við höfum verið að ræða í kvöld, annars vegar persónuverndarreglugerðin og hins vegar þessi reglugerð um frjálst flæði ópersónugreinanlegra gagna. Persónuverndarreglugerðin var gagnrýnd á sínum tíma fyrir það að reisa einhverjar hindranir sem bandarísku netrisunum gæti þótt óaðlaðandi en var kannski mikilvægasta púslið í þessu, vegna þess að gæði umgjarðarinnar í Evrópu eru fyrir vikið meiri. Réttindi almennings eru tryggari heldur en í villta vestrinu í Bandaríkjunum. Nú er Ísland komið á þann stað að fara loksins að innleiða hitt púslið sem snýst í rauninni um að smyrja markaðinn fyrir fyrirtæki að skáka sínum gögnum á milli aðildarríkja innan Evrópusambandsins. Mig langar að spyrja hv. þingmann: Hvað segir það okkur að þetta langur tími hafi liðið þegar um er að ræða iðnað sem Evrópusambandið áætlar að nemi (Forseti hringir.) kannski 2–6% af landsframleiðslu svæðisins? (Forseti hringir.) Af hverju eru íslensk stjórnvöld svona sein að taka við sér í þessu?