154. löggjafarþing — 116. fundur,  4. júní 2024.

frjálst flæði ópersónugreinanlegra gagna.

912. mál
[22:31]
Horfa

Andrés Ingi Jónsson (P) (andsvar):

Frú forseti. Mér finnst tímalínan dálítið áhugaverð í þessu vegna þess að þessar tvær reglugerðir sem við höfum verið að ræða í kvöld spretta fram á sama ári. Persónuverndarreglugerðin er innleidd 2018, að vori, og þá var Alþingi að rembast við að vera á sama tíma og Brussel þannig að allt gengi hnökralaust fyrir sig varðandi innleiðinguna. Nokkrum mánuðum síðar er sú reglugerð sem verið er að innleiða með frumvarpinu hér samþykkt í Brussel. Svo bara líða þessi ár. Maður veltir fyrir sér hvort það skorti eitthvert frumkvæði hjá stjórnvöldum. Ýmis lönd í kringum okkur hafa sérstakan gagnastjóra sem sér um að samræma hluti á milli ráðuneyta. Hér er þetta tvístrað milli ýmissa ráðuneyta, island.is er í einu en fjarskiptin í öðru. (Forseti hringir.) Vinnsla á gagnastefnu byrjaði fyrst á Íslandi núna í vetur. (Forseti hringir.) Mér finnst það dálítið seint.