154. löggjafarþing — 116. fundur,  4. júní 2024.

frjálst flæði ópersónugreinanlegra gagna.

912. mál
[22:32]
Horfa

Sigmar Guðmundsson (V) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég vil þakka hv. þm. Andrési Inga Jónssyni fyrir þetta. Kannski gæti ein ástæðan verið einhver landlæg tortryggni innan Stjórnarráðsins gagnvart því sem kemur frá Evrópu, einhver tregða innan ráðuneytanna sjálfra sem oft er haldið um af mönnum sem eru ekkert sérstaklega áhugasamir um það sem kemur frá Evrópusambandinu eða úr Evrópusamstarfinu. Ég kann svo sem ekki nákvæma skýringu á þessu sem hv. þingmaður nefnir en vil þó ítreka þakkir mínar til hv. þingmanns fyrir að taka þetta upp í umræðum um þetta mál. Kann ég honum bestu þakkir fyrir skoðanaskiptin og andsvörin í kvöld.