frjálst flæði ópersónugreinanlegra gagna.
Virðulegi forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir ræðu sína sem var um margt áhugaverð. Þar kom bersýnilega í ljós að þar fór Evrópusambandssinni og ekkert að því. Ég verð að segja eins og er að ég er hlynntur EES-samningnum. Þó svo að einhverjir haldi að ég hafi allt á hornum mér gagnvart Brussel þá held ég að EES-samningurinn sé að mörgu leyti góður, en hann er í stórkostlegri hættu vegna þess að við erum að sogast inn í Evrópusambandið án þjóðaratkvæðagreiðslu.
Það sem mig langar að spyrja hv. þingmann um og benda honum á í leiðinni varðar sérfræðinganefndirnar sem hann minntist á. Við höfum aðgang að þeim, eins og kom réttilega fram í máli hans, en við höfum hins vegar ekki nýtt okkur það nægilega. Við höfum einfaldlega ekki mannafla til þess í Brussel að gæta hagsmuna okkar þar. Oft er það þannig með hagsmunagæslu að einfalt er að gæta hagsmuna. Það höfum við ekki gert nægilega í sameiginlegu nefndinni, t.d. með því að stöðva það að innleiða lög um raforkuviðskipti yfir landamæri, af því að við erum ekki í raforkuviðskiptum yfir landamæri. Í öðrum orkupakkanum vorum við inni í gaspakkanum, í gasreglugerðunum, en í þriðja orkupakkanum vorum við það ekki. Það er einföld ákvörðun nefndarinnar.
Hann talar um að ganga inn í Evrópusambandið. Hv. þingmaður talar um að við myndum alla vega hafa áhrif þar ef við værum inni í sambandinu. Sem dæmi er Lúxemborg, 600.000 manna samfélag, með sex þingmenn á Evrópuþinginu af 705 þingmönnum, (Gripið fram í.) innan við 1%. Af 705 þingmönnum Evrópuþingsins er Lúxemborg með sex. Við fengjum sex. Ég held að ekki sé hægt að fá færri þingmenn en það. Ég tel okkar hagsmunum ágætlega borgið í EES-samstarfinu með Noreg sem forystuþjóð. Þetta er kallað „Norwegian system“ í Bretlandi t.d. Ég vil hins vegar benda hv. þingmanni á að ég tel að þessi innleiðing hér sé ekki nægilega góð og er enginn sómi að henni. (Forseti hringir.) Það er innleiðingin á Evrópureglunum sem skiptir máli. Við eigum að hafna því sem við eigum að hafna og innleiða það sem vel er gert.