frjálst flæði ópersónugreinanlegra gagna.
Frú forseti. Ég vil þakka hv. þm. Eyjólfi Ármannssyni fyrir innlegg hans í þessa umræðu í kvöld. Það gleður mig að heyra að við séum sammála því að EES-samningurinn sé góður fyrir Íslendinga og íslenska hagsmuni. Mér finnst gott að heyra það frá hv. þingmanni vegna þess að ég hef stundum skynjað það hjá sumum flokksfélögum hans a.m.k. að ekki sé mikil hrifning með EES-samstarfið. Auðvitað þurfum við að vera svolítið dugleg og öflug og reyna að gæta okkar hagsmuna eins og við getum í því samstarfi sem við erum í núna, en ég var að leiða talið að því að kannski væri hreinlegra að sitja þarna við borðið. Þá koma oft þessi rök, að við yrðum svo fá á þessu stóra þingi. Þá er þetta alltaf eins og öll ríkin séu hvert á móti öðru og það sé alltaf afl þess stærsta sem ráði, menn tali sig ekki niður á niðurstöðu eða að sameiginlegir snertifletir mála geti ekki náð þvert á ríki og annað í þeim dúr. Svo fannst mér þetta svolítið áhugaverð tölfræði vegna þess að ég veit ekki betur en að þingflokkur Flokks fólksins telji sex manns á Alþingi Íslendinga. Mér hefur nú heldur betur fundist muna um þá þingmenn hér og áhrif þeirra á umræðuna í salnum þó að þetta sé ekki stærsti þingflokkurinn á þingi. Ég get t.d. nefnt að hv. þm. Eyjólfur Ármannsson er einn og sér duglegri en flestir að gæta hagsmuna sinna umbjóðenda í þinginu, þannig að það er allt hægt að gera þrátt fyrir að menn séu fáir.
Það sem mér finnst undirliggjandi í þessu sem hv. þingmaður nefnir er þessi misskilningur um að það sé alltaf afl atkvæða þess stærsta sem ráði för inni í þessu samstarfi. Norðurlöndin eiga með sér alls konar samstarf. Menn mynda með sér fylkingar, blokkir út frá hagsmunum og ýmsu öðru þegar kemur að málum þarna. (Forseti hringir.) Það er auðvitað gömul saga og ný að fullveldi okkar er í sjálfu sér meira (Forseti hringir.) þegar við höfum bein áhrif á löggjöfina frekar en að taka hana upp í gegnum innleiðingar eins og við erum að ræða hér.