frjálst flæði ópersónugreinanlegra gagna.
Frú forseti. Ég vil þakka hv. þm. Eyjólfi Ármannssyni fyrir þetta og gaman að heyra hann fara yfir söguna eins og hann gerði. Inntakið í því sem hann nefndi í upphafi er að við séum ekki nægilega dugleg að gæta hagsmuna okkar í EES-samstarfinu. Ég get að mörgu leyti tekið undir það. Það á auðvitað að vera algjört kappsmál stjórnvalda á hverjum tíma, alveg sama á hvaða vettvangi það er, að vera á bensíngjöfinni þegar kemur að því að gæta að íslenskum hagsmunum. Mér finnst hins vegar að slök hagsmunagæsla, ef mönnum finnst það vera raunin innan EES-samstarfsins, eigi ekki að leiða okkur sjálfkrafa í andstöðu við Evrópusambandið eins og mér finnst undirliggjandi hjá hv. þingmanni. En þetta er auðvitað efni í miklu stærra samtal sem við eigum örugglega eftir að taka. Ég vil fagna því að við séum að eiga skoðanaskipti um ekki bara þetta mál heldur stærri myndina á bak við málið, sem lætur ekki mikið yfir sér en er þó ágætlega stórt.