154. löggjafarþing — 116. fundur,  4. júní 2024.

frjálst flæði ópersónugreinanlegra gagna.

912. mál
[22:43]
Horfa

Sigmar Guðmundsson (V) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þm. Arndísi Önnu Kristínardóttir Gunnarsdóttur fyrir andsvarið. Það var tæpt á ýmsu. Fyrst varðandi það hvort við höfum áhuga á að ganga þarna inn eða á hvaða forsendum þá er það sem dregur mig kannski svolítið að þessu bæði þetta sem við köllum stundum Evrópuhugsjónina, þ.e. að ríki Evrópu sitji svolítið við sama borð, eigi með sér virkt samtal, bæði um sameiginleg hagsmunamál og ýmsa aðra þætti líka sem mér finnst bara vera eitt stefið í kannski friðvænlegri og betri og manneskjulegri heimi, og svo er því auðvitað ekki að neita að það sem dregur mig líka að Evrópusambandinu er að þá eigum við meiri möguleika á því að taka upp stöðugri gjaldmiðil, eins og hv. þingmaður þekkir auðvitað vel, sem mér finnst vera stærsta peningalega hagsmunamál íslensku þjóðarinnar, bæði heimila, fyrirtækja, sveitarfélaga og ríkisvaldsins.

Ég er sammála hv. þingmanni um að þegar við erum með þessi mál í höndunum, eins og við erum að ræða hér, þá vill það oft verða að það er ákveðin sjálfvirkni í gangi. Og kannski er það líka þegar það eru — af því að ég var að fara yfir það — sendar út umsagnarbeiðnir um þetta til þeirra sem yfirleitt eru að fá umsagnarbeiðnir og þær eru ekki að berast til baka. Ég er ekki að gagnrýna það en kannski er þetta orðin svona einhver sjálfvirkni að einhverju leyti. Það sem gerist auðvitað ef við erum þarna inni er að þá höfum við með miklu beinni hætti aðgang að því að hafa áhrif á löggjöfina þar. Þannig að já, ég held að áhugi allra myndi að sjálfsögðu aukast mikið við það að hafa þann beina snertiflöt og þá beinu aðkomu að stofnunum Evrópusambandsins sem við höfum ekki með sama hætti þegar við erum með hinum EFTA-ríkjunum að halda úti þessu EES-samstarfi, sem auðvitað setur okkur líka í þá stöðu að við erum algjörlega undir hælnum, tel ég, á (Forseti hringir.) því hvað gerist í stjórnmálaþróun í Noregi hvað varðar hagsmuni Íslands, því að það eru auðvitað Norðmenn (Forseti hringir.) og kannski stærð Norðmanna og fjármagn Norðmanna sem heldur þessu samstarfi að mörgu leyti uppi og við Íslendingar njótum góðs af.