154. löggjafarþing — 116. fundur,  4. júní 2024.

frjálst flæði ópersónugreinanlegra gagna.

912. mál
[22:46]
Horfa

Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir (P) (andsvar):

Forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir svarið. Ég ætla að nýta seinna andsvar mitt til að vera að mörgu leyti ósammála áhyggjum hv. þm. Eyjólfs Ármannssonar hvað varðar mögulega inngöngu Íslands í Evrópusambandið. Hv. þm. Eyjólfur Ármannsson benti á í andsvari sínu rétt áðan að ef við gengjum í Evrópusambandið hefðum við líklegast eitthvað um sex þingmenn af 700 og eitthvað. Á móti kemur að við hefðum auðvitað eitt atkvæði í ráði Evrópusambandsins. Það er óháð þingmannafjölda og skiptir auðvitað máli.

Það sem mig langar til að segja um þetta er að eins og staðan er höfum við náttúrlega engan þingmann í Evrópusambandinu. Það sem mér finnst líka skipta máli er tvennt. Ég tel gríðarlega mikilvægt að tala um hlutina. Það að hafa rödd, það að hafa ágætan aðgang að púltinu skiptir máli. Það sem mér finnst skýrasta dæmið um þetta (Forseti hringir.) er t.d. í fiskveiðistjórnarkerfi heimsins. Ísland er pínulítið land (Forseti hringir.) en þar höfum við rödd vegna þess að við höfum hagsmuni, við höfum þekkingu og við höfum alltaf staðið upp og staðið fyrir okkar. Það gerir það (Forseti hringir.) að verkum að, eins og kennari minn í háskólanum í Leuven sagði á sínum tíma: Ísland er stórveldi þegar kemur að fiskveiðistjórnarmálum. (Forseti hringir.) Þó að við séum pínulítil. Við erum ekkert með rosalega mikinn atkvæðisrétt, en þetta skiptir máli. Við megum ekki vanmeta mátt orðsins. Ég ætla bara að orða það þannig.