frjálst flæði ópersónugreinanlegra gagna.
Frú forseti. Það hefur verið mjög áhugavert að hlusta á og taka þátt í umræðunni hér í kvöld og eftirtektarvert að stjórnarliðar hafi látið sig vanta en kannski skiljanlegt vegna þess að hér erum við að ræða mál sem snertir samfélag framtíðarinnar og ríkisstjórnin hefur kannski færra fram að færa þar heldur en margir aðrir flokkar. Allt gott kemur frá Brussel, myndu margir segja. Ég held að þegar kemur að stærra regluverki, þegar kemur að flóknari reglum sem samfélagið þarf til að halda utan um flókin kerfi þá hafi Ísland grætt alveg óstjórnlega mikið á þeirri sérfræðiþekkingu og vinnu sem hefur átt sér stað í Brussel og sem við höfum fengið til Íslands í gegnum EES-samstarfið.
Hér er gott dæmi um það. Hér er frumvarp sem er ætlað að vera hluti af innleiðingu á sameiginlegum innri stafrænum markaði Evrópusambandsins, sem skiptir auðvitað gríðarlega miklu máli fyrir Ísland að vera þátttakandi í. Við þekkjum söguna. Við þekkjum tölurnar. Frá því að sú Evrópureglugerð sem hér er til umfjöllunar var samþykkt árið 2018 og til dagsins í dag hefur framleiðsla á gögnum á að giska fimmfaldast. Það er alveg ofboðsleg þróun sem leiðir t.d. af því að búið er að innleiða 5G farsímanetið. Það eru snjallnemar alls staðar, það eru tæki, þvottavélar og ísskápar, sem eru tengd netinu og það er verið að færa starfsemi í síauknum mæli í skýin. Svo má auðvitað ekki gleyma gervigreindargagnaverunum sem sprengja alla skala í þessari gagnaframleiðslu og gagnaumferð. Þess vegna er ekki nema furða að mörg ríki hafi sett mikinn fókus á þennan þátt samfélagsins.
Ég var að rifja upp hér fyrr í dag þingsályktunartillögu sem þingflokkur Pírata lagði fram að mig minnir þrisvar sinnum, tillögu til þingsályktunar um stofnun embættis tæknistjóra ríkisins. Þar var hugmyndin aðeins víðari. Þar átti að fela fjármála- og efnahagsráðherra að stofna þetta nýja embætti sem hefði yfirumsjón með öllum tæknilegum innviðum og þá værum við ekki bara að tala um gögn heldur líka hvaða forritalausnir eru notaðar, hvaða vélbúnaður er notaður, staðlaþróunarferla og gæðastýringu þannig að væri hægt að ná sem mestu út úr kerfinu okkar. Þessi tillaga þykir mér mjög framsýn fyrir það að hafa verið fyrst lögð fram hér á 146. þingi. — Hvernig telur maður aftur þingin? Þetta hefur verið svona 2016 myndi ég halda. Ætli það ekki? 2015 jafnvel. — Við getum alveg gert okkur í hugarlund hvernig umhverfið væri í dag ef þessu embætti hefði verið komið á.
Eitt af því sem hefur haldið aftur af framþróun í þessum málaflokki hér á landi er hversu tvístraður hann er á milli ráðuneyta. Eins og ég las hér úr þessari þingsályktunartillögu er fjármála- og efnahagsráðherra falið að koma þessu embætti á vegna þess að á þeim tíma heyrði island.is, Stafrænt Ísland, undir það ráðuneyti. Í dag held ég að það sé svo sem enn þá þar en þar að auki erum við með ráðherra sem hefur með fjarskiptamál að gera. Þar er háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra sá sem heldur um stjórnartaumana. Svo erum við með ráðuneyti sem hafa mjög gagnadrifna starfsemi innan sinna vébanda og er þar kannski helst að nefna innviðaráðherra sem við upphaf þessa kjörtímabils hafði Þjóðskrá hjá sér. En verkefnum hennar var skipt upp þannig að fasteignaskrá var færð yfir til Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar og síðan fréttum við að á ríkisstjórnarfundi í morgun hefði verið ákveðið að færa Þjóðskrá frá innviðaráðherra til dómsmálaráðherra. Hérna er ég búin að telja upp fjögur ráðuneyti af þeim 12 sem eru starfandi í Stjórnarráðinu í dag sem miðlægur tæknistjóri með skýrt og sterkt umboð gæti séð til þess að myndu örugglega tala saman, myndu örugglega vinna saman að sameiginlegum markmiðum þegar kemur að því sem gæti heitið gagnastefna ríkisins, vegna þess að ríkin sem hafa komið sér upp embætti gagnastjóra, þau hafa líka innleitt einhverja gagnastefnu. Hér á landi er sú vinna nýfarin af stað. Í desember síðastliðnum var kynnt hvítbók um gagnastefnu og þar held ég að fjármálaráðherra hafi haldið um pennann, svo að við höldum áfram að draga upp hversu margir ráðherrar koma að þessu öllu saman. Vonandi að sú vinna gangi vel áfram.
Mig langaði að ljúka fyrst umfjöllun um þessa tillögu til þingsályktunar sem þingflokkur Pírata lagði fram vegna þess að hún var samþykkt á 150. þingi. Vorið 2020, í þinglokum, náðist þverpólitísk sátt um að gera þessa tillögu að ályktun Alþingis en með töluverðum orðalagsbreytingum þannig að ekki var lengur um að ræða stofnun embættis tæknistjóra ríkisins heldur almennari ályktun um að efla vinnu er varðar tæknilega innviði Stjórnarráðsins. Ég held að eftir á að hyggja hafi þingið ekki tekið góða ákvörðun í því að breyta orðalaginu og breyta nálguninni með þessum hætti. Sérstakur öflugur tæknistjóri hefði getað teygt vinnuna áfram með miklu skýrari hætti en þeim að fela ráðuneyti í einhverju óljósara samhengi að vinna hana áfram. En þetta er sú staða sem við getum spilað úr í dag.
Við fjöllum hér um innleiðingu á reglugerð Evrópusambandsins um ramma um frjálst flæði ópersónulegra upplýsinga frá árinu 2018. Hér fyrr í kvöld talaði ég um þetta sem nokkurs konar systurreglugerð persónuverndarreglugerðarinnar sem var samþykkt sama ár. Sú reglugerð var innleidd með miklum hraði hér á Alþingi vorið 2018 og ég held að það séu engar ýkjur að segja að netrisarnir vestanhafs hafi verið með böggum hildar yfir því regluverki vegna þess að þar stóð evrópska samfélagið, Evrópusambandið, Ísland og Noregur, nokkuð þéttan vörð um réttindi einstaklinga, um rétt almennings hvað varðar gögn sem snerta einstaklinga í stafrænum heimi. Sem betur fer hefur sá slagur unnist almennings megin, þannig að persónuverndarreglugerðin stendur traustum fótum innan Evrópska efnahagssvæðisins og tryggir ákveðin gæði þess stafræna umhverfis sem við getum bætt okkur í.
Hitt púslið vantaði og það er sú reglugerð sem hér er lagt til að innleiða. En um hvað snýst hún? Ópersónugreinanleg gögn geta verið ýmiss konar. Ópersónugreinanleg gögn geta t.d. verið þau sem fyrirtæki framleiða þegar þau stunda sín viðskipti. Hér gætum við t.d. verið að tala um reikninga á milli tveggja fyrirtækja. Þá eru engar persónur til staðar, það eru bara viðskiptaauglýsingar sem falla hér undir. Þetta er reyndar eina dæmið sem er nefnt í greinargerð frumvarpsins um löggjöf sem samþykkt þess gæti mögulega haft áhrif á. Lög um bókhaldsupplýsingar eru þau einu í íslenska lagasafninu sem ráðuneytið segir að kveði á um staðsetningu gagnasetta. Síðan geta ópersónugreinanleg gögn verið þau sem eru framleidd af tækjum sem eru nettengd. Hér gætum við, af því að það er farið að blása ansi hressilega, t.d. nefnt veðurmælana sem fólk er oft með úti í garði hjá sér og svo eru ýmis tæki sem eru kannski sérhæfðari og eru þá að mæla t.d. álag á mannvirki til þess að, segjum Vegagerðin viti hvenær er kominn tími á viðhald á brú eða annað.
Það er svo áhugavert að þegar áhrifamat var gert á reglugerðinni í Evrópusambandinu á sínum tíma komst fólk í Brussel að þeirri niðurstöðu að mögulega væri hægt að ná kostnaði við hýsingu gagna hjá fyrirtækjum niður um 20 og allt upp í 50% með því að vera ekki með þessa kröfu um staðsetningu innan ríkis heldur hleypa böndunum dálítið lausum. Ef fyrirtæki gætu leitað betri samninga innan EES-svæðisins þá væri hægt að ná kostnaði töluvert niður. Möguleikar ríkja til þess að staðsetja gögn innan landamæra eru ríkir, skýrir og nauðsynlegir. Hér væri t.d. hægt að nefna gögn sem snerta þjóðaröryggi en mér finnst það stundum óþarfa hervæðing orðræðunnar að vera alltaf að draga allt í það samhengi. Ég myndi kannski bara nefna dæmi um gögn sem við heyrum stundum talað um hér í þingsal sem snerta flugumferðarstjórn. Ef við eigum að geta tryggt 100% uppitíma á flugumsjónarkerfi Íslands, sem er u.þ.b. það sem við þurfum að gera til þess að geta komið í veg fyrir óhöpp í háloftunum, þá er alveg eðlilegt að skilyrða hýsingu þeirra gagna sem unnið er með við staðsetningu innan lands, þannig að einhver möguleg rof á sambandi við útlönd geti ekki haft katastrófísk áhrif á flugumferð yfir landið.
Ég sé að tíminn er að renna frá mér. Það er margt annað sem ég hefði viljað nefna en mig langar í lokin, vegna þess að umræðan hefur farið að snúast dálítið um kosti og galla Evrópusambandsins og það hvaða áhrif Ísland getur haft innan þess, að nefna þessi tæknilegu innleiðingarmál á fjarskipta- og tölvumálefnum sérstaklega, vegna þess að ég fæ oft þá tilfinningu að íslensk ráðuneyti séu vanmáttug þegar kemur að því að fjalla um mál skyld þessu hér. Þá langar mig að velta því upp hvort aðild að Evrópusambandinu myndi hafa ekki bara þau jákvæðu áhrif í för með sér að við gætum haft bein áhrif á svona löggjöf á frumstigum í gegnum alla þá vinnu sem er í gangi í Brussel heldur værum við líka nauðbeygð til að byggja upp þá sérþekkingu (Forseti hringir.) á þessum málaflokki sem okkur skortir allt of oft. En meira um það kannski í andsvörum.