frjálst flæði ópersónugreinanlegra gagna.
Virðulegi forseti. Ég vil þakka hv. þm. Andrési Inga Jónssyni fyrir áhugaverða ræðu. Það var sérstaklega áhugavert að heyra um það að Píratar hefðu á 146. löggjafarþingi komið með tillögu um svokallaðan tæknistjóra. Mér telst svo til að það hafi verið fyrir átta árum síðan, árið 2016. Það er svo merkilegt að í þessu frumvarpi er talað um tengilið og það má eiginlega segja að hann sé eins konar tæknistjóri. Það er lagt í hendur ráðherra hérna en í löggjöf er oft talað um eins konar tengilið. Það er t.d. gert í raforkulögunum. Ég held að þau noti meira að segja hugtakið tengiliður. En það er í fleiri lögum þar sem á að vera svona miðpunktur sem önnur ríki geti haft samband við. Þetta er t.d. í lögum um lækningatækjareglugerðina, MDR, „medical device regulation“, og í fleiri reglugerðum.
Ég verð að lýsa mig ósammála hv. þingmanni um að við myndum geta innleitt þetta með betri hætti ef við værum í Evrópusambandinu og ég skal segja af hverju. Það er vegna þess að það virðist vera eins og við höfum ekki verið upplýst um hvað segir í inngangi reglugerðarinnar sem hér er verið að innleiða sem er reglugerð Evrópusambandsins um ramma um frjálst flæði ópersónulegra upplýsinga í Evrópusambandinu. Þar segir, með leyfi forseta:
„Stafvæðing hagkerfisins eykst hröðum skrefum. Upplýsinga- og fjarskiptatækni er ekki lengur sérstakur geiri, heldur er hún grundvöllur allra nútímalegra, nýskapandi hagkerfa og samfélaga.“ — Hún er grundvöllur allra nútímalegra, nýskapandi hagkerfa og samfélaga.
Síðan er talað um hraða þróun gagnahagkerfisins. Ég get ekki séð að við séum að fara inn í gagnahagkerfið eða að við séum að leggja grundvöll allra nútímalegra, nýskapandi hagkerfa og samfélaga með innleiðingunni, með þessari tilvísunaraðferð og með þeim hætti sem við erum hér að gera. (Forseti hringir.)
Mig langar að spyrja hv. þingmann að því hvort hann sé sammála mér um að þessi tilvísunaraðferð (Forseti hringir.) sé ekki nægjanleg og hvort við hefðum átt að þýða reglugerðina og setja hana í lög eins og með persónuverndarreglugerðina.