frjálst flæði ópersónugreinanlegra gagna.
Frú forseti. Fyrst langar mig að nefna að hugarreikningurinn varðandi 146. þing var réttur hjá mér. Það var 2016–2017 sem þingflokkur Pírata lagði til að stofna embætti tæknistjóra ríkisins. Ég er sammála hv. þingmanni um að það fari betur á því þegar við innleiðum Evrópureglur að skrifa þær út í lagatexta sem er almenningi aðgengilegur eins og annar lagatexti. Mér finnst bara fara betur á því. Það var flókið þegar við vorum að innleiða persónuverndarreglugerðina vorið 2018, bæði vegna þess að hún er stór og flókin og vegna þess að tíminn var naumur, en það var gerlegt. Fyrir vikið er almenningur aðeins nær því að geta glöggvað sig á stöðu laga með því að fletta þeim frekar en að þurfa að leita eitthvað annað. Þetta held ég að ættu að vera almennar reglur.
Síðan varðandi gagnahagkerfið er það ekkert smotterí. Bæði er söfnun og vinnsla gagna orðin grundvöllur að eiginlega öllum þáttum samfélagsins en það sem er skilgreint sérstaklega sem gagnahagkerfi er metið einhvers staðar á bilinu 2–6% af landsframleiðslu innan Evrópusambandsins, þannig að hér er til mikils að vinna að þetta svæði sé framarlega og til mikils að vinna fyrir Ísland að vera framarlega innan þess hóps. Með þessu frumvarpi eru ekki stigin þau skref. Hér er verið að búa til eitthvert grunnregluverk varðandi frjálsan markað með hýsingu gagna í grunninn. Það er nauðsynlegur þáttur en það er engan veginn sú heildarsýn sem við þurfum. (Forseti hringir.) Til þess þurfum við t.d. gagnastefnu (Forseti hringir.) og til þess þurfum við ríkisstjórn sem tekur þessi mál aðeins fastari tökum.