154. löggjafarþing — 116. fundur,  4. júní 2024.

frjálst flæði ópersónugreinanlegra gagna.

912. mál
[23:12]
Horfa

Andrés Ingi Jónsson (P) (andsvar):

Frú forseti. Já og nei. Ég held að það hafi kannski meira riðið á að innleiða persónuverndarreglugerðina eins vel og hægt er heldur en þá sem hér er um að ræða vegna þess að þar erum við að tala um grundvallarréttindi einstaklinga á meðan hér væri hægt að tala um þetta sem frjálst flæði vöru. Ef gögnin eru þess eðlis að þau falla undir þessa reglugerð þá er ekki um jafn viðkvæman hlut að ræða.

Þá er kannski rétt að nefna að gagnasett þar sem blandast saman ópersónugreinanleg gögn og persónuupplýsingar, að þetta samhangandi Evrópuregluverk kveður á um að um slík gögn skuli fara sem persónuupplýsingar. Réttindi persónu, (Forseti hringir.) réttindi einstaklings, það er alltaf það sem þarf að vernda fyrst, og svo restina.