frjálst flæði ópersónugreinanlegra gagna.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir sína skeleggu og frábæru ræðu. Það er alltaf jafn ánægjulegt að hlusta á hv. þingmann, sérstaklega þegar maður er kannski ekki allt of vel kunnugur þeim málum sem stundum eru hér á ferð. Hér erum við með enn eina innleiðinguna á Evrópureglum, ekki enn þá komin í Evrópusambandið, erum í EES. Það er búið að taka ansi langa atrennu að þessu. Það er búið að taka sex ár að koma þessu til framkvæmdar og ég er að velta því fyrir mér, miðað við að mér líður ekkert allt of vel með þetta af því að ég er ekki viss um að þetta sé nægjanlegt, hvort það sé hafið yfir allan vafa að það sé ekki klúður þarna inni í þessu öllu saman. Mig langar til þess að spyrja hv. þingmann aðeins hvort það þurfi ekki að gera einhverja bragarbót á þessu enn þá frekar eða hvort það sé nauðsynlegt að við séum að innleiða þetta. Er þetta betra fyrir okkur eða ekki betra? Og allt þar fram eftir götunum. Mér finnst kannski ástæða til þess að fabúlera um það því að þótt ég hafi lesið greinargerðina og séð að þetta er enn eitt innleiðingarmálið þá er ég ekki alveg að átta mig á því hvernig þetta nýtist okkur sem mest og best.
Mér þætti voðalega vænt um að við gætum aðeins spjallað pínulítið meira um það. Eins og t.d. ópersónugreinanlegar upplýsingar, eru þær að nýtast í sambandi við það þegar við erum að fá hér einstaklinga sem eru ópersónugreinanlegir að öllu leyti? Getum við óskað eftir því að fá einhverja aðstoð við það erlendis frá að persónugreina einstaklinga sem hingað koma eða er það ekkert svoleiðis? Hvað í rauninni er svona frábært við þetta? Það er nú eiginlega það sem mig langar að fá hv. þingmann til þess að lyfta aðeins upp með mér því að ég átta mig ekki á þessu nógu vel til að verða allt of glöð með það.