frjálst flæði ópersónugreinanlegra gagna.
Frú forseti. Það er búin að vera löng atrenna að þessari innleiðingu. Hér erum við að tala um reglur sem voru afgreiddar í Brussel 2018 og nú er árið 2024. Mér sýnist að lokainnleiðing hafi klárast 2021 í Evrópusambandinu. Þá átti að vera búið að ryðja úr vegi síðustu dreggjum löggjafar sem stangaðist á við þessar nýju reglur. Þannig að við erum ekki að gera þetta tímanlega. Hvort þurfi að gera bragarbót á frumvarpinu, ég bara treysti mér ekki til að segja af eða á vegna þess að ég er nú ekki svo heppinn að sitja í nefndinni sem um málið fjallar og verð bara að taka undir með hv. þingmanni þegar hún lýsir því hversu óaðgengilegt þetta mál er í rauninni. Það þarf að fletta nokkrum lögum ofan af greinargerðinni til að sjá um hvað það fjallar. Það hoppar ekki beinlínis á þig útskýring á því. En í grunninn held ég að það sé kannski einfaldast að líta bara á þetta sem verkfæri fyrir fyrirtæki og stofnanir frekar en eitthvað sem snýr að okkur sem einstaklingum. Þetta snýst um það að íslensk fyrirtæki og stofnanir geti tekið þátt í sameiginlegum markaði, geti vistað sín gögn hvar sem er innan Evrópska efnahagssvæðisins. Þessi sameiginlegi markaður verður síðan til þess vonandi að keyra upp samkeppni og auka þannig þjónustu á sama tíma og verð lækka. Þetta er eitt af þessum dæmum um frjálst flæði innan Evrópu sem er ætlað að einfalda fólki og fyrirtækjum lífið. Lengra nær minn skilningur kannski ekki á þessu.