154. löggjafarþing — 116. fundur,  4. júní 2024.

frjálst flæði ópersónugreinanlegra gagna.

912. mál
[23:17]
Horfa

Inga Sæland (Flf) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni hjartanlega fyrir svarið. Maður kemur aldrei að tómum kofanum á þessum bænum. Það liggur ljóst fyrir. Burt séð frá því að ég og minn flokkur erum nú ekkert yfir okkur ástfangin af öllum þessum stimpilgerðum frá Brussel og vildum helst vera sem mest laus við þær þá hef ég einhvern veginn túlkað samninginn okkar um Evrópska efnahagssvæðið, EES, sem gefur okkur þetta fjórfrelsi og flæði inn á innri markaðinn, algerlega — ég vissi ekki að það væri einhver skortur á ópersónugreinanlegum upplýsingum inn í þau réttindi sem sá samningur hefur veitt okkur. Eins og hv. þingmaður nefnir þarf maður sennilega að kafa eins djúpt í alla lagabálka í kringum þetta og mögulegt er til þess að virkilega ná utan um nauðsynina á lögfestingu á þessari Evrópureglugerð sem mér hugnast ekki sérlega vel, að vera endalaust að stimpla eitthvað frá Brussel.