154. löggjafarþing — 116. fundur,  4. júní 2024.

frjálst flæði ópersónugreinanlegra gagna.

912. mál
[23:19]
Horfa

Andrés Ingi Jónsson (P) (andsvar):

Frú forseti. Ég held að nauðsyn regluverks af þessu tagi sé vegna þess einmitt hversu óljósar og óvæntar hindranirnar geta verið á frjálsu flæði. Tökum sem dæmi að lönd hafa væntanlega við upphaf þessarar reglugerðar haft einhvern lagabókstaf sem skyldar vistun ákveðinna gagnasetta innan lands. Þau þyrftu við samþykkt þessarar reglugerðar að rökstyðja hvers vegna það væri nauðsynlegt út frá ríkum almannahagsmunum, ekki bara af því bara heldur þyrftu að vera raunverulegir ríkir almannahagsmunir fyrir þeim óbeinu hindrunum — eða beinu hindrunum. Svo held ég að það hafi kannski verið skiljanleg tortryggni hjá yfirvöldum að sleppa beislum lausum, (Forseti hringir.) að leyfa fyrirtækjum að vista gögn erlendis svo að eftirlitsyfirvöld heimaríkisins gætu ekki nálgast þau. (Forseti hringir.) En þessi reglugerð snýst einmitt um að lögbær eftirlitsaðili geti teygt sig í gögnin, að það sé ekki hægt að skjóta öllu undan.