154. löggjafarþing — 116. fundur,  4. júní 2024.

frjálst flæði ópersónugreinanlegra gagna.

912. mál
[23:20]
Horfa

Þórunn Sveinbjarnardóttir (Sf) (andsvar):

Frú forseti. Ég hef fylgst af mikilli athygli með umræðunni um þetta frumvarp hér í kvöld, um frjálst flæði ópersónugreinanlegra gagna. Eins og verða vill þegar umræðan dýpkar þá breikkar hún líka og við höfum hér rætt og þingmenn hafa rætt um ekki bara það frumvarp sem hér er undir heldur einnig um gildi EES-samningsins, Evrópusamstarfsins, hvernig gerðir frá framkvæmdastjórn Evrópusambandsins sem tilheyra EES-samningnum eru innleiddar í íslenska löggjöf. Heyra má að það eru skiptar skoðanir um það og hvernig það er gert. Mér finnst að mörgu leyti ágætt að fá mál sem þetta hér til almennilegrar umræðu. Það eru 30 ár síðan við gengum í EES eða gerðum þann samning og hann byggir á fjórfrelsinu um frjálsa för fólks, vöru, þjónustu og fjármagns. Í þessu máli er verið að tala um frjálst flæði ópersónugreinanlegra gagna sem þá eru í rauninni orðin að vöru og við vitum að virðisauki gagnanna verður til þegar þau eru unnin. Ég velti svona fyrir mér, af því að þetta virðist eins og svo oft áður vera einhvers konar færibandaafgreiðsla hér á hinu háa Alþingi, hvort hv. þm. Andrés Ingi Jónsson hafi skoðað það hér vegna þessarar umræðu hvort í þessu felist beinlínis einhverjar hættur á markaðnum. Erum við með nógu tryggar varnir fyrir þau gögn sem við viljum að séu vistuð með einhverjum hætti hér á landi eða þannig að þeirra sé gætt á Íslandi eða mun þetta í rauninni kannski engu breyta um það?